Innlent

Sveinn Andri vill að Biggi lögga verði rekinn vegna Facebook-færslu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri Sveinsson vísir/gva
Facebook-færsla Birgis Arnar Guðjónssonar, sem betur er þekktur sem Biggi lögga, þar sem hann ávarpar mennina fimm sem sýknaðir voru af ákæru um hópnauðgun síðastliðinn föstudag hefur vakið mikla athygli síðasta sólarhringinn. Hátt í 5000 hafa „lækað“ færsluna og þá hefur henni verið deilt yfir 1200 sinnum.

Ekki eru þó allir jafnhrifnir af færslunni og vill Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi eins mannanna, að Biggi fái uppsagnarbréf í fyrramálið.

Í færslu sinni segir Biggi meðal annars:

„Þó svo að réttarkerfið nái ekki utan um brot ykkar þá gerir samfélagið það. Ég þekki ykkur ekki og ekki heldur stúlkuna og ég veit ekki nákvæma málavexti. Ég þarf þess heldur ekki. Það sem ég veit er að þið notuðuð líkama sextán ára ölvaðrar stúlku. Þið skiptust á að ríða henni og tókuð það upp á myndband. Hvað voruð þið að hugsa? Sama hver aðdragandinn var eða hver sagði hvað að þá áttuð þið alltaf að vita að þetta væri svo kolrangt. Þó svo að dómstóll hafi sýknað ykkur þá þurfið þið að lifa við þennan verknað ykkar. Samfélagið hefur dæmt ykkur seka.“

Til ungu mannanna sem voru kærðir fyrir að nauðga 16 ára stúlku í Asparfelli; Þó svo að réttarkerfið nái ekki utan um...

Posted by Birgir Örn Guðjónsson on Saturday, 21 November 2015
Um þessi orð Bigga segir Sveinn Andri í færslu á sinni Facebook-síðu:

„Á opinberum vettvangi, þar sem hann kennir sig við lögregluna, kallar þessi Biggi sakborninga sem sýknaðir voru nauðgara. Lögreglumenn sem ég hef rætt við eru rasandi og segja „Bigga löggu" brjóta gegn grundvallarreglum sem menn eiga að tileinka sér eftir nám í Lögregluskólanum og koma óorði á stéttina. Þessi maður er varðstjóri á Kópavogsstöðinni og því iðulega fyrsti stjórnandi á vettvangi glæps. Til slíkra verka verður að vera gerð krafa um lágmarks dómgreind og hlutleysi. Ef allt er með felldu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fær hann uppsagnarbréf afhent í fyrramálið, eða verður settur i gangbrautarvörzlu. Ég mun a.m.k. senda lögreglustjóra formlegt erindi.“

Maður sem titlar sig sem 'Biggi Lögga" setur frá sér eftirfarandi á fésbók sinni:'Þó svo að réttarkerfið nái ekki utan...

Posted by Sveinn A Sveinsson on Sunday, 22 November 2015
Sýknudómurinn frá því á föstudag hefur vakið upp nokkra reiði í samfélaginu. Þrír dómarar mátu það svo að vitnisburður sextán ára stúlku hefði ekki næga stoð, í öðrum gögnum málsins, til þess að hann dygði sem sönnun gegn eindreginni neitun piltanna fimm sem hún kærði.


Tengdar fréttir

Allir sýknaðir af hópnauðgun

Fimm piltar á aldrinum 18-21 árs hafa verið sýknaðir af ákæru um nauðgun á sextán ára stúlku í samkvæmi í Breiðholti í maí í fyrra. Einn var sakfelldur fyrir að taka atvikið upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×