Lífið

Berjast um eignir Williams

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Robin Williams
Robin Williams Vísir/Getty
Börn leikarans Robin Williams, sem féll fyrir eigin hendi í ágúst á síðasta ári, standa nú í ströngu við ekkju leikarans. 

Susan Schneider Williams, sem var gift leikaranum í þrjú ár, segist eiga rétt á því að fá hús Williams í Tiburon í Kaliforníu og sakar börnin hans um að hafa tekið persónulega muni leikarans, sem hún hafi átt að fá.

Börnin hans, Zak, Zelda og Cody segja Schneider Williams vera með frekju og saka hana um að vilja breyta erfðaskránni þannig að hún fái meira í sinn hlut. Segjast þau vera miður sín vegna atburðanna. 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×