Lífið

Nýr rappari stígur á stokk: GKR er "Ballin"

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
GKR með nýtt lag.
GKR með nýtt lag.
Rapparinn GKR stígur á stokk hér á Vísi, en myndbandið hans við lagið Ballin er frumsýnt hér á Vísi.

Í myndbandinu má sjá rapparann í hinum ýmsu löndum, en það var tekið upp í Belgíu, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og á Spáni. „Þetta lag er smá brot af því sem mun koma 2015, myndbandið var tekið upp í ferðalagi um evrópu sem ég fór í, í ágúst 2014, vorum 8 alls, vinir að ferðast og finna fyrir frelsi,“ segir hann og bætir við:

„Ég sem tónlist til að tengjast fólki og veita innblástur."

Lagið var tekið upp í Stúdíó Hljóm og er takturinn í laginu eftir Bangerboy. Sjálfur sá GKR, sem heitir Gaukur Grétuson, um að klippa myndbandið og tók það að mestu leyti upp sjálfur.

Hinn tvítugi rappari heldur úti Facebooksíðu, Soundcloudsíðu og Twittersíðu.

Hægt er að sækja lagið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×