Innlent

Segist vera fyrsti einhverfi þingmaðurinn: „Alls óvíst að ég sé allra skrýtnastur hér“

Birgir Olgeirsson skrifar
Sigurður Örn segir ekki nokkurn vafa á að á Alþingi hafi í nútíð og fortíð starfað einstaklingar með allskonar raskanir.
Sigurður Örn segir ekki nokkurn vafa á að á Alþingi hafi í nútíð og fortíð starfað einstaklingar með allskonar raskanir. GVA/Vilhelm)
„Að því sögðu vil ég nota tækifærið og segja að ólíkt flestum ykkar hér inni þá er ég greindur, það er að segja greindur einhverfur,“ sagði Sigurður Örn Ágústsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, á Alþingi í dag þar sem hann gerði Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins að umfjöllunarefni.

Hann sagði hlutverk stöðvarinnar að efla lífsgæði og bæta framtíð barna og unglinga með þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar en helstu fatlanir barna sem leiða til tilvísunar á greiningarstöðina eru einhverfa, hreyfihömlun og blinda. Hann sagði 300 börnum vísað til greiningarstöðvarinnar á ári en þar af er um sextíu vísað frá árlega vegna þess að stofnunin annar ekki öllum hópum við núverandi aðstæður.

Vill verkefni til einkaaðila

Hann hvatti Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra til að tryggja með öllum tiltækum ráðum að varnarlausustu einstaklingar landsins fái þá aðstoð sem þeir þurfa jafn snemma og þörf er á, til dæmi með útvistun verkefna til einkaaðila.

„Það getur haft mjög mikil áhrif á lífsgæði viðkomandi að bæði greina stöðuna rétt snemma og enn frekar að bregðast við nægjanlega snemma,“ sagði Sigurður Örn og bætti við að endingu að þó hann sé mögulega fyrsti einhverfi þingmaðurinn þá sé ekki nokkur vafi á að bæði í fortíð og nútíð hafi starfað hér fólk með allskonar raskanir.

„Og mér sýnist að það sé alls óvíst að ég sé allra skrýtnastur hér,“ sagði Sigurður en heyra má ræðu hans hér. 

Vill bæta kjör þingmanna

Sigurður Örn vakti athygli í síðustu viku þegar hann flutti fyrstu ræðu sína á Alþingi en hann gerði kjör og starsumhverfi þingmanna að umtalsefni sínu og sagði þessi atriði ekki laða að besta fólkið í starfið.

„Mitt mat er að það sé hætta á að þetta starf verði, ef ekki verður brugðist við, eingöngu fyrir þá sem eru sterkefnaðir nú þegar, eldheita hugsunarmenn eða þá sem ekki hafa val um annað eða betra starf,“ sagði Sigurður Örn en þá ræðu má horfa á hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×