Lífið

Ætla að búa saman í London

Bradley Cooper og Suki Waterhouse hafa verið saman í tvö ár.
Bradley Cooper og Suki Waterhouse hafa verið saman í tvö ár. Vísir/Getty
Talið er að Hollywood-leikarinn Bradley Cooper og fyrirsætan Suki Waterhouse, ætli að búa saman í London.

Cooper ætlar að frumsýna Broadway-leikritið sitt The Elephant Man á West End í London í maí og orðrómur er uppi um að á meðan á sýningunum stendur ætli hann að búa þar með kærustunni.

„Það hefur alltaf verið draumur Bradleys að stíga á svið í West End en það þýðir að hann getur einnig búið með Suki. Hann er að leita að leiguíbúð og ræðir þetta allt saman við hana. Bradley er yfir sig ástfanginn,“ sagði heimildarmaður The Sun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×