Lífið

Hefur aldrei notað bótox

Kate Winslet notar töfraefni til að halda sér unglegri.
Kate Winslet notar töfraefni til að halda sér unglegri. Vísir/Getty
Kate Winslet segist aldrei hafa notað bótox eða látið setja í sig fyllingar.

„Nei, alls ekki. Það er þetta ótrúlega töfraefni Lancôme's Visionnaire Cx. Þú heldur að ég segi það bara af því að ég er andlit merkisins en satt best að segja þá verðurðu að trúa mér,“ sagði leikkonan í viðtali við breska tímaritið Harper"s Bazaar.

„Þetta efni er töfrum líkast. Ég set það á mig á hverjum degi og maður sér virkilegan mun. Ég verð 39 ára í næstu viku, þannig að ég þarf á allri mögulegri hjálp að halda.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×