Enski boltinn

Tveir til viðbótar settir í bann hjá Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Atvikið umrædda í París.
Atvikið umrædda í París. Vísir/AFP
Chelsea hefur sett tvo stuðningsmenn félagsins í bann frá heimavelli liðsins, Stamford Bridge, vegna atviksins á lestarstöðinni í París fyrr í vikunni.

Sjá einnig: Mourinho skammast sín vegna stuðningsmanna Chelsea

Í gær voru þrír fyrstu mennirnir settir í heimaleikjabann og eru þeir því orðnir fimm talsins. Frönsk lögregluyfirvöld sögðu í dag að þeir hafi borið kennsl á alls sjö menn sem veittust að þeldökkum manni og neituðu honum aðgengi að neðanjarðarlest.

Fram kemur á heimasíðu Chelsea að ef nægilegar sannanir séu fyrir hendi verði viðkomandi settir í ævilangt bann af félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×