Viðskipti innlent

Norðurál vísar ásökunum Harðar á bug

Atli Ísleifsson skrifar
Norðurál og Landsvirkjum takast nú hart á um endurskoðun raforkusamnings.
Norðurál og Landsvirkjum takast nú hart á um endurskoðun raforkusamnings. Vísir/Vilhelm
Norðurál hefur vísað ásökunum forstjóra Landsvirkjunar í garð stjórnenda félagsins á bug.

Í tilkynningu frá Norðuráli segir að af máli forstjórans megi draga þá ályktun að nær öll gagnrýni sem beinist að Landsvirkjun í opinberri umræðu sé á ábyrgð Norðuráls. „Jafnframt er því haldið fram að Norðurál stýri ákveðnum verkalýðsfélögum. Eins og allir sjá þá eru þessar fullyrðingar út í hött.“

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sakaði í gær forsvarsmenn Norðuráls um að hafa truflað erfiðar kjaraviðræður í Straumsvík í því skyni að bæta samningsstöðu sína, en Norðurál og Landsvirkjum takast nú hart á um endurskoðun raforkusamnings.

Í tilkynningunni frá Norðurál segir að viðræður um samningsbundna framlengingu orkusamnings milli fyrirtækjanna hafi farið fram af kurteisi og virðingu og góður gangur verið í þeim nýlega.

„Það er því óvænt og mikil vonbrigði að Landsvirkjun skuli koma fram með þessum hætti eftir nærri 20 ára farsælt samstarf fyrirtækjanna.

Norðurál mun áfram vinna af heilindum að samkomulagi við Landsvirkjun og vonar að Landsvirkjun geri hið sama.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×