Menning

Ruslaralýður vakti Almar í nótt með hrópum og köllum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Almar svaf út í morgun.
Almar svaf út í morgun. vísir
Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, hefur núna verið í fjóra sólahringa inni í glerkassa í húsakynnum Listaháskóla Íslands. Augljóslega eru næturnar sennilega þær erfiðustu og erfitt getur reynst að festa svefn.

Í nótt mætti hópur fólks niður í Listaháskóla og var með háreisti og köll gagngert til þess að vekja Almar. Þetta heyrðist augljóslega á Youtube-rás hans og voru tístarar ekkert sérstaklega ánægðir með þessi inngrip í hinn annars vel heppnaða gjörning Almars.

Almar ætlar sér að vera í kassanum í heila viku en um er að ræða lokaverkefni hans í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla.

Mikið hefur verið fjallað um Almar í fjölmiðlum hér innanlands sem og fjölmiðlum um allan heima. Fólk virðist hafa gríðarlegan áhuga á Almari og þegar þessi frétt er skrifuð er það mat rúmlega sjötíu prósenta lesenda að hann eigi eftir að þrauka í heila viku.

Sjá einnig: Könnun: Hvað endist Almar lengi í kassanum?

Umræðan á Twitter hefur verið svakaleg um karlinn í kassanum og sprakk hún í nótt en notendur eru að styðjast við kassamerkið #nakinníkassa.

Bein útsending

Tengdar fréttir

Mismunandi stellingar Almars - GIF

Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, hefur núna verið í þrjá sólahringa inni í glerkassa í húsakynnum Listaháskóla Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.