Innlent

Feitir borga ekki meira fyrir flugsæti hjá íslenskum flugfélögum

Snærós Sindradóttir skrifar
Fáum þykir þægilegt að ferðast lengi í flugvél. Sérstaklega ekki fólk sem er stórt á alla kanta.
Fáum þykir þægilegt að ferðast lengi í flugvél. Sérstaklega ekki fólk sem er stórt á alla kanta. vísir/Vilhelm
Íslenskir flugfarþegar, sem af einhverjum ástæðum komast ekki fyrir í einu flugsæti, þurfa ekki að búast við því að vera gert að borga fyrir annað sæti við innritun. Í Bandaríkjunum hefur lengi verið uppi umræða um hvað er sanngjarnt í þessum efnum.

Fréttablaðið hafði samband við WOW air, Icelandair og Flugfélag Íslands og leitaði svara við því hvernig brugðist væri við fólki sem ekki væri sniðið í flugvélasæti. „Þetta kemur stundum til tals. Þegar þetta gerist er reynt að finna viðkomandi sæti þar sem er laust við hliðina. Þegar vélin er alveg sneisafull þá er fólk sett í gangsæti,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Sigrún Daníelsdóttir
Hann bendir þó á að fleiri en feitt fólk taki mikið pláss í flugvélum. „Ég sá mynd sem var mjög sláandi. Þá voru kraftlyftingagaurar að fara út og þeir sátu sitthvorum megin við ganginn. Það var varla hægt að skjóta sér á milli þeirra þar sem þeir nánast snertust.“

Hann segir að þó flugfélagið skikki engan til að borga fyrir tvö sæti séu dæmi þess að fólk velji sjálft að borga fyrir meira pláss. „Ef það er einhver sem veit sjálfur að hann kemst ekki á milli, þá er búið að láta vita og jafnvel kaupa hliðarsæti.“

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, tekur í sama streng og Guðjón. „Við leysum málin með framlengingu á belti. Hingað til hefur þetta alltaf verið leyst farsællega um borð.“ Aðspurð hvort farþegar flugfélagsins hafi verið beðnir um að borga fyrir annað sæti við innritun segir hún að það hafi ekki verið gert hingað til.



Guðjón Arngrímsson
Það sama er uppi á teningnum hjá Flugfélagi Íslands. Reynt er að koma því þannig fyrir að fólk sem þarf tvö sæti fái tvö sæti. 

Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur er í forsvari fyrir Samtök um líkamsvirðingu. Henni þykir óeðlilegt ef farþegum er gert að borga fyrir tvö sæti. „Alveg eins og við framleiðum skó í mismunandi stærðum þurfum við að gera okkur grein fyrir því að fólk kemur í mismunandi stærðum.“

Hún bendir á að þrátt fyrir að mannkynið hafi breikkað og hækkað hafi flugsæti minnkað í sparnaðarskyni. „Mér finnst mjög eðlilegt að flugfélögin endurskoði þetta þannig að flugvélarnar séu betur í stakk búnar til að mæta farþegum af ólíkum stærðum.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×