Lífið

Sjáðu ótrúlega útgáfu Lady Gaga af laginu Imagine

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lady Gaga var mögnuð.
Lady Gaga var mögnuð.
Tónlistarkonan Lady Gaga tók lagið Imagine eftir  John Lennon á opnunarhátíð Evrópuleikanna sem haldnir eru í fyrsta skipti í Baku.

Frammistaða hennar hefur vakið mikla athygli og er hægt að fullyrða að hún er stórkostleg. Laga endaði lagið á því að þakka áhorfendum og tók lagið greinilega á hana, þar sem hún táraðist.

Lady Gaga er ein af fáum kvenkyns listamönnunum á þessum áratugi sem hefur gefið út þrjár plötur sem allar hafa ratað á toppinn.

Hér að neðan má sjá ótrúlega útgáfu af laginu Imagine. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×