Lífið

Rússneskur þvottabjörn sem stendur undir nafni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Að þrífa hluti er líf og yndi þessa litla félaga.
Að þrífa hluti er líf og yndi þessa litla félaga.
Ef þú heldur að nafngiftin þvottabjörn sé einhver vitleysa þá er þessi krúttlegi félagi til í að sýna að þú hafir rangt fyrir þér. Rússneskt par ákvað að fá sér gæluþvottabjörn og hann hefur yndi af því að þvo hluti.

Eigandi dýrsins birtir myndband af honum á vefnum þar sem hann þvær allt sem hann kemst í. Skiptir engu máli þó það sé sími, skór eða annað smádót sem hann nær að koma loppum sínum á. Óhætt er að segja að kona mannsins kunni ekki að meta uppátækjasemi dýrsins.

Hægt er að sjá þetta myndskeið hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×