Þrír metnir hæfastir til embættis héraðsdómara Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 9. september 2015 18:03 Héraðsdómur Reykjavíkur stendur við Lækjartorg. Vísir/Valli
Arnar Þór Jónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlögmaður og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands voru metnir hæfastir til að hljóta skipun í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Alls sóttu sjö manns um starfið en það var auglýst í Lögbirtingarblaðinu 12. júní síðastliðinn. Niðurstaða dómnefndarinnar er að þessir þrír séu jafn hæfir í embættið en innanríkisráðuneytið fól dómnefnd, í samræmi við lög um dómstóla, að meta hæfi þeirra. Aðrir sem sóttu um starfið voru Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri umboðsmanns Alþingis, Hafsteinn Dan Kristjánsson, aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis, Stefanía G. Sæmundsdóttir, settur saksóknari og Stefán Erlendsson, héraðsdómslögmaður og lögfræðingur hjá Vegagerðinni. Dómnefnd á að gæta þess að samræmis sé gætt þannig að jafnræði sé í heiðri haft eins og segir í umsögn dómnefndar. Hana má nálgast í heild sinni hér. Dómnefndin byggir mat sitt á eftirfarandi atriðum: menntun, starfsferli og fræðilegri þekkingu, aukastörfum og félagsstörfum, almennri starfshæfni , sérstakri starfshæfni og andlegu atgervi. Þá voru umsækjendur teknir í viðtöl í ágúst. Nefndarmenn voru Eggert Óskarsson, Jakob R. Möller, Anna Mjöll Karlsdóttir og Guðrún Björk Bjarnadóttir sátu í nefndinni.
Alþingi Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Tvær á toppnum Innlent Annarri ákærunni formlega vísað frá Erlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Fleiri fréttir Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Sjá meira