Vill ekki leyfa innflutning á sænsku munntóbaki: „Betur sett án þess“ Birgir Olgeirsson skrifar 2. febrúar 2015 21:51 Neftóbak er einnig notað sem munntóbak hér á landi. Vísir/GVA „
Ég held að við værum mikið betur sett án þess,“ sagði Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Landlæknisembættinu, í Reykjavík síðdegis í dag þar sem ummæli Hannesar Hjartarsonar, háls-, nefs- og eyrnalæknis, voru borin undir hann. Hannes heldur því fram að það sé órökrétt að banna innflutning á sænsku munntóbaki vegna þess að rannsóknir hafa sýnt engin tengsl á milli krabbameins og neyslu á sænsku munntóbaki. Viðar benti á að innflutningur á þessu tóbaki sé bannaður inna evrópska efnahagssvæðisins en Svíar og Norðmenn séu á undanþágu. Hann sá enga ástæðu til að leyfa þetta sænska munntóbak á Íslandi og sagði landann betur settan án þess. Þegar hann var spurður hvort ekki væri rétt að leyfa notkun á sænsku munntóbaki, sem hefur verið rannsakað, í stað þess íslenska sem ekki hefur verið rannsakað benti Viðar á að íslenska neftóbakið sé unnið úr sænskri hrávöru. Þegar sænska hrátóbakið er komið til Íslands er sett út í það salt, ammoníak og pottaska. Hann sagði ekki ráðlegt að bera saman skaðsemi af reykingum og munntóbaki, frekar ætti að bera saman þá sem nota tóbak og þá sem ekki nota það.
Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Veðmálasíður „heillandi heimur“ fyrir börnin Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Sjá meira