Lífið

Grimmd og fegurð mennskunnar

Magnús Guðmundsson skrifar
BÆKUR

Undur

R.J. Palcio

Þýðing: Ólöf Eldjárn

Mál og menning



Sumar bækur eru bækur án aðgreiningar. Þær eru fyrir alla. Þær segja einfaldar og fallegar sögur af fólki, oft í óvenjulegum aðstæðum og gera það af einlægni. Undur eftir R.J. Palacio er þannig bók en úti í hinum stóra heimi er þessi bók flokkuð sem barnabók. Íslenskur útgefandi hefur þó ekki séð ástæðu til þess að skella slíkum stimpli á bókina og er það vel.

R.J. Palacio er New York búi á miðjum aldri sem í tuttugu ár starfaði við að gera bókakápur fyrir aðra. En dag einn fyrir einhverum árum vildi svo til að hún hitti einstakt barn fyrir framan ísbúð sem varð til þess að henni skildist að nú væri hennar tími kominn og þar með hófst hún við að skrifa Undur.

Undur segir sögu Ogga, tíu ára stráks í New York sem er að flestu leyti eins og allir aðrir strákar. Hann hefur gaman af tölvuleikjum og Stjörnustríði, hjólar og leikur við hundinn sinn. En Oggi er fæddur með erfðagalla sem veldur því að hann lítur ekki út eins og aðrir strákar. Andlitið er afmyndað og hann hefur allt frá fæðingu þurft að gangast undir óteljandi skurðaðgerðir. Fram til þessa hefur móðir Ogga séð um kenna honum heima þar sem hann er elskaður og engum bregður við ásýnd hans. En nú er komið að því að Oggi fari í skóla, mamma hans er afleit í brotareikningi og svo þarf hann líka að láta á það reyna að takast á við umheiminn.

Framan af er það Oggi sem segir sögu sína og sagan öll hverfist vissulega um hann. Frásögn hans er einlæg, svona eins einlæg og getur orðið hjá tíu ára strák, og Palcio fellur ekki í þá gildru að velta sér upp úr tilfinningunum. Þetta eru tilfinningar tíu ára stráks sem er að takast á við það að vera öðruvísi – að vera „ljótur“ og að vera „skrípi“ í augum hinna krakkanna.

Eftir því sem líður á söguna fá fleiri persónur að taka að sér að segja söguna. Systir Ogga er þar besta dæmið þar sem hún er fjórum árum eldri og því þroskaðri. Hennar frásögn er góð á því hvernig er að vera systkini fatlaðs barns. Að vera skilningsríkur, sjálfstæður og þroskaður einstaklingur þótt maður sé bara fjórtán ára stelpa. Fleiri slíkar raddir eru kallaðar til en aðeins þær ungu, því þetta er þeirra heimur. Inn í söguna eru líka skemmtilega fléttaðar vísanir í allt frá Shakespeare til Green Day. Allt eykur þetta á vídd einfaldrar sögu með skemmtilegum hætti þó svo örlítið gæti á einsleitni í röddum sögumanna. Þýðing Ólafar Eldjárn er þó einkar lipurleg og vel unnin þó svo maður sakni á stundum ensku heitanna á dægurlögum og bíómyndum.

Undur er falleg þroskasaga og styrkur hennar liggur í því að það er ekki aðeins söguhetjan Oggi sem þroskast. Kynnin af Ogga eru líka þroskandi og hann myndar falleg sambönd við fólkið sem verður á vegi hans. Undur tekst á við grimmd manneskjunnar og fordóma en hún lofsyngur líka kærleikann og umburðarlyndið í margbreytilegum heimi. Bókin er líka bráðskemmtileg á köflum og aldrei langt í þennan eilítið dökka húmor sem einkennir stundum þá sem þurfa að ganga á brattann í lífinu.

Niðurstaða: Falleg margradda þroskasaga sem lesendur á öllum aldri ættu að hafa gaman af. Einföld en ljómandi skemmtileg bók.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×