Friðsamleg lausn ekki í sjónmáli í Úkraínu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 2. febrúar 2015 07:15 Skriðdrekar stjórnarhersins á leið á vígvöllinn. vísir/ap
Úkraínskir hermenn og skæruliðar aðskilnaðarsinna héldu áfram að skiptast á skotum í austurhluta landsins í gær. Eftir að vopnahlésviðræður fóru út um þúfur gripu menn til vopna á ný og börðust af auknum krafti. Helsti styrinn snýr nú að bænum Debaltseve. Bærinn er í Donetsk-héraði og íbúar hans eru á þriðja tug þúsunda. Hernaðarlegt mikilvægi hans er mikið þrátt fyrir smæð hans en hann hýsir lestarstöð sem uppreisnarmenn vilja ráða yfir. Yfirvöld í Kænugarði segja að minnst þrettán hermenn úr þeirra röðum hafi látist í gær auk jafn margra óbreyttra borgara. Líklegt er að sú tala hafi hækkað. Tölur um mannfall aðskilnaðarsinna liggja ekki fyrir. Í borgum og bæjum í kringum Debaltseve hefur einnig verið barist. Uppreisnarmenn hafa náð bænum Vuhlehirsk á sitt vald og sprengjum rignir yfir Avdiivka. Íbúar á svæðinu hafa flúið og leitað skjóls í borginni Slaviansk sem er undir stjórn yfirvalda. „Við vitum ekki einu sinni hverjir eru að skjóta. Sprengjunum rigndi yfir bæinn og þar er ekkert vatn, rafmagn eða matur,“ segir maður sem flúði frá Avdiivka. Bardagar hafa nú staðið í landinu, með hléum, í níu mánuði. Talið er að yfir fimm þúsund manns hafi látist í átökunum. Í augnablikinu virðist friðsamleg lausn ekki vera í sjónmáli.
Mest lesið Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira