Tindastóll stöðvaði 23 leikja sigurgöngu KR-inga í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2015 20:59 Stólarnir unnu KR í kvöld, fyrstir liða í vetur. Vísir/Ernir
Tindastóll varð í kvöld fyrsta liðið til að vinna KR í Dominos-deild karla í vetur en Tindastóll vann þriggja stiga sigur á KR, 81-78, þegar liðin mættust í fjórtándu umferð deildarinnar í kvöld. KR er ríkjandi Íslandsmeistari og var búið að vinna þrettán fyrstu deildarleiki tímabilsins. Auk þess vann KR-liðið síðustu tíu deildarleiki síðasta tímabils og Stólarnir voru því að enda 23 leikja sigurgöngu Vesturbæinga í kvöld. Tindastólsliðið er áfram í öðru sæti deildarinnar nú fjórum stigum á eftir KR en KR vann fyrri leik liðanna eftir framlengingu. Myron Dempsey skoraði 24 stig fyrir Tindastól, Darrel Keith Lewis var með 15 stig og Darrell Flaks skoraði 11 og tók 9 fráköst. Pétur Rúnar Birgisson var með 9 stig og 8 stoðsendingar. Helgi Már Magnússon skoraði 21 stig fyrir KR og Michael Craion var með 17 stig og 14 fráköst. Pavel Ermolinskij var með 10 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst. Stólarnir voru 20-17 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með fjögurra stiga forskot í hálfleik, 36-32. Tindastólsliðið bætti við forskotið í þriðja leikhlutanum sem liðið vann 21-16. KR kom til baka í lokaleikhlutanum og komst tveimur stigum yfir, 78-86, eftir að liðið náði 10-2 spretti á loksprettinum. Stólarnir héldu hinsvegar út og tryggði sér sigu með því að skora fimm síðustu stig leiksins. Darrel Keith Lewis skoraði risastóra körfu og setti niður víti sem hann fékk að auki og hin ungi Pétur Rúnar Birgisson skoraði síðan tvö síðustu stig leiksins af vítalínunni. Pavel Ermolinskij reyndi þriggja stiga skot í lokin en það geigaði og Stólarnir fögnuðu sigri.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira