Ert þú Mary Poppins eða Ernest Hemingway þegar þú færð þér í tána? Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. júlí 2015 21:19 Mary Poppins, Ernest Hemingway, Nutty Professor og Mr. Hyde.
Eftir langt kvöld úti á galeiðunni felst flest fólk á að það umbreytist eftir of marga áfenga drykki. Nú slá sálfræðingar frá University of Missouri-Columbia því föstu að drykkjuhrútar geti breyst í fjórar mismunandi persónur þegar þeir detta í það; ýmist Ernest Hemingway, Mary Poppins, Nutty Professor eða Mr. Hyde. Ef lundargeð einhvers breytist lítið við mikla drykkju er sá hinn sami svokallaður Ernest Hemingway en týpan dregur nafn sitt af rithöfundinum fræga sem alræmdur var fyrir að skrifa öll sín helstu verk undir áhrifum. „Skrifaðu drukkinn, lagfærðu edrú,“ er meðal annars haft eftir honum. Hemingway-ar eru þeir sem glata fæstum persónueinkennum sínum þegar þeir eru í glasi; hvort sem það er skipulagshæfni, áreiðanleiki eða sköpunargáfa. Þeir sem eru Mary Poppins eru ástríkir og vinalegir í glasi, rétt eins og barnfóstran ástæla. „Mary Poppins-hópurinn kristallar ljúfu og ábyrgu drykkjumenna sem lenda sjaldan í veseni þegar áfengi er við hönd,“ segja sálfræðingarnir. Ólíklegt verður þó að teljast að drykkjumaðurinn þurfi að geta sagt „Supercalifragilisticexpialidocious.“ Ef einhver fellur undir skilgreininguna á Nutty Professor þá er hann alla jafna mjög feiminn þegar hann er ekki undir áhrifum – en sprengir svo gjörsamlega af sér allar hömlur þegar hann svo mikið sem finnur lyktina af áfengi. Prófessorarnir verða miklar félagsverur í glasi og mannblendnar með eindæmum. Þeir sem umturnast hins vegar til hins verra undir áhrifum eru svokallaðir Mr. Hyde, nefndir í höfuðið á skuggahlið skáldsagnapersónunnar Dr. Jekyll. Sálfræðingar leiddu í ljós að meðlimir þessa hóps væru líklegri til að hugsa órökrétt, verða óskynsamri og árásargjarnari en meðlimir hinna hópanna þegar þeir fá sér í aðra tánna. Sálfræðinganir frá University of Missouri-Columbia framkvæmdu rannsókn sína á 364 einstaklingum af báðum kynjum. Rannsóknin var framkvæmd með spurningalistum sem einstaklingarnir svöruðu í fyllsta trúnaði og gengið var úr skugga um að svörin væru órekjanleg. Sálfræðingarnir hafa nú í hyggju að nýta svörin til að hanna meðferðarúrræði fyrir fólk sem hefur orðið fíkninni að bráð. „Sumir einstaklingar „breytast“ meira en aðrir undir áhrifum en eðli og umfang breytinganna geta haft skaðlegar afleiðingar,“ segja þeir. „Þessar niðurstöður, sem og hugmyndin um „drukkna persónuleika“ geta nýst okkur til að hann nýstárlegar matsaðferðir og hvatningardrifin meðferðarúrræði fyrir áfengissjúklinga.“
Mest lesið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Fleiri fréttir Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Sjá meira