Lífið

Sonurinn stílisti í sjö daga

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Tanja ásamt börnunum sínum Nataníel Loga og Bergdísi.
Tanja ásamt börnunum sínum Nataníel Loga og Bergdísi. Vísir/Stefán
Hinn sex ára gamli Nataníel Logi fékk það skemmtilega hlutverk í vikunni að vera stílisti móður sinnar, leikkonunnar Tönju Bjarkar Ómarsdóttir.

Það var systir Tönju sem benti henni á bandaríska konu sem gert hafði það sama með syni sínum og Tanja ákvað að bera hugmyndina undir son sinn og í sameiningu ákváðu þau að slá til.

Nataníel tók stílista-hlutverkinu af mikilli alvöru og vandaði valið þegar kom að fatnaði og fylgihlutum. „Hann er bara búinn að gera mig mjög töff, ég er alveg að fíla þetta,“ segir Tanja og bætir við: „Hann fékk líka að velja skartgripi og er mjög áhugasamur um þetta allt saman.“

Fötin velja þau mæðgin í sameiningu kvöldið áður og hún segir verkefnið skemmtilegt og hjálpa þeim að skilja hvort annað betur.

„Hann er sjálfur með mjög ákveðnar skoðanir um hvernig hann vill klæða sig og hvað honum finnst flott og ég er kannski ekki alltaf alveg sammála,“ segir Tanja og hlær.

„Hann er voða skynsamur, eins og á mánudaginn valdi hann Timberland-skó af því þeir eru svo góðir í svona slæmu veðri,“ segir hún glöð í bragði og bætir við: „Hann er ekkert að setja mig í einhverja hlýraboli heldur setur á mig húfu og trefil.“

Eins og margir á Tanja meira af fötum en hún notar og því falla sumar flíkur í gleymsku. „Ég á rosa mikið af fötum og nota kannski svona 10 prósent af fötunum sem ég á.“

Hún segir verkefnið opna fyrir nýja möguleika þegar kemur að því að raða saman flíkum sem hún hefði sjálf ekki parað saman eða hefur ekki notað í langan tíma. „Á þriðjudaginn setti hann saman fjólubláa hettupeysu og gulljakka sem ég hef ekki notað í mörg ár og ég sagði bara: Vá, þetta er geðveikt,“ segir Tanja og mælir með að fleiri foreldrar prufi þetta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×