Innlent

Undanþágur veittar fyrir slátrun

Linda Blöndal skrifar
vísir/auðunn
Tvö svínabú, bæði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi munu slátra um 120 svínum á morgun eftir að undanþága var veitt til þess á grundvelli dýravelferðar og yfirlýsingar um að kjötið færi ekki á markað á meðan verkfalli stendur.

Sláturfélag suðurlands hefur fengið dýrin sem verður slátrað á morgun. Sextíu gripir koma frá tveimur búum, Grís og flex í Laxárdal og Högum á Selfossi.

Úlfhéðinn Sigurmundsson, svínbóndi á Högum segir að sláturfélagið greiði sér 80 prósent af kjötinu þar sem kjötið fari beint í frost. Fullt gjald fáist ef til vill síðar.

Á Högum eru 600 svín og 60 þeirra voru tilbúin til slátrunar. Ekki er enn ljóst hvort að fleiri undanþágur verði samþykktar í dag.

Slátrunin á morgun er þó einungis brot af því sem dýraeftirlitsmenn sögðu fyrir viku að þyrfti að slátra á búum landsins svo mæta megi dýravelferðarsjónarmiðum. Þá var talað um rúmlega tvö þúsund dýr.

Fundur Svínaræktenda og dýralækna með BHM í hádeginu lægði að hluta til öldurnar í verkfalli dýralækna. BHM boðaði til fundarins með mjög skömmum fyrirvara fyrir hádegi. Tveir fulltrúar frá Bændasamtökunum sátu fundinn, tveir frá svínaræktendum og formaður Dýralæknafélagsins.

Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar var tilgangur fundarins að finna sameiginlega lausn á þeim neyðarvanda sem orðinn er í svínabúum en vika er síðan eftirlitsdýralæknar bentu á að slátra þyrfti  yfir tvö þúsund svínum á nokkrum búum þar sem svo þröngt væri um skepnurnar. Kröfum dýralækna um að setja kjöt ekki á markað hafa margir svínabændur hafnað. Þeir segja dýralæknana án lagaheimildar til að setja slíkt fram sem skilyrði fyrir undanþágum fyrir slátrun. Svínabændur ráða nú ráðum sínum með forystu Bændasamtakanna.

Ekkert tilboð hefur borist frá ríkinu í deilunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×