Lífið

Sækir bolta með aðstoð barnalaugar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Rósa lætur ekki hafa sig að fífli.
Rósa lætur ekki hafa sig að fífli. vísir/skjáskot
Golden Retrieverinn Rósa, eða Rosie, deyr ekki ráðalaus.

Þegar eigandi hennar, Esther Cushway, kastaði bolta út í sundlaug fjölskyldunnar hafði hvutti ekki í huga að bleyta sig neitt að óþörfu.

Í stað þess að stinga sér til hundasunds nýtti Rósa það sem loppu var næst, litla barnalaug, og sigldi á henni út á miðja sundlaugina.

Þar sótti hún boltann, spólaði sig til baka og stökk á bakkann – án þess bleyta nokkuð annað en loppurnar.

Myndband af uppátæki Rósu rataði á netið í liðinni viku og hefur vakið verðskuldaða athygli. Þannig fjallaði vefmiðillinn Mashable um svaðiliförina sem sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Vísir þvær hendur sínar af því að myndbandið sé tekið upp á rönd – sem er auðvitað óþolandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×