Heiðar snyrtir litgreinir kjólinn: „Hann er spanskgrænn“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. febrúar 2015 15:06 "Ég er prestssonur utan af landi og þegar hempan var orðin mjög gömul þá kom grámosgræn slykja á svarta litinn á hempuna,“ segir Heiðar. vísir/pjetur
Heiðar Jónsson snyrtir hafði ekki heyrt af kjólnum sem nánast allir hafa talað um í dag þegar Vísir náði af honum tali. Kjóllinn hefur vakið gríðarlega athygli og þjóðin nánast klofin í skoðunum sínum þegar kemur að lit hans. Vísir sá því ekki annað í stöðunni en að fá einn helsta litgreinanda landsins til að álykta um litinn. „Þegar ég sá myndina af þessum kjól fór ég að hugsa; er það blái liturinn sem gerir þennan svarta lit spanskgrænan, eða er hann spanskgrænn? Það er eina vandamálið sem ég sé,“ sagði Heiðar eftir að hafa tekið sér örfáar mínútur til að litgreina umræddan kjól. Kjóllinn er í raun ósköp venjulegur. Hann er blár og svartur að lit, en margir sjá hann hvítan og gylltan. Það er vegna þess að heilinn stjórnar því í hvaða lit við sjáum hluti. Í þessi tilfelli tökum við inn allt ljós sem kemur frá honum, en köstum frá okkur ljósi sem kemur frá bakgrunni hans. Því sjáum við litinn í samhengi við þá liti sem sjást umhverfis kjólinn. Þar af leiðandi verður erfitt að greina réttan lit.Kjóllinn, með greini, eins og hann er nú kallaður á samfélagsmiðlum.„Hann er fagurblár og grásvartur og ég er búinn að kíkja á myndina núna nokkrum sinnum. Það sem hins vegar er skrítið, er að svarti liturinn sem ég sé hefur eiginlega ekkert nafn. Ekki nema í gamla daga en þá var hann kallaður spanskgrænn. Ég er prestssonur utan af landi og þegar hempan var orðin mjög gömul þá kom grámosgræn slikja á svarta litinn á hempu gömlu prófastanna. Hann er spanskgrænn og fagurblár,“ segir Heiðar. Kjóllinn sé því í grunninn blár og svartur, en að litir taki á sig ýmsar myndir. „Blái liturinn er svo fagurblár. Það eru svo margir bláir litir. Kóngablár er skærari og fánablár er gulari. Skærblár er hann ekki því hann er fagurblár og svarti liturinn spanskgrænn. Þetta er litafræðin,“ bætir hann við. Kjóllinn hefur vakið svo mikla athygli að framleiðendur hans hafa ákveðið að framleiða hann í hvítu og gylltu. Hann er þegar framleiddur í nokkrum litum en framleiðandinn, Roman Originals, hefur ákveðið að framleiða minnst þrjú hundruð kjóla til viðbótar í öllum litum. Í hvaða lit sjáið þið, lesendur Vísis, kjólinn?
Tengdar fréttir Hvernig er þessi kjóll á litinn? Gylltur og hvítur? Svartur og blár? 27. febrúar 2015 09:38 Ætla að framleiða kjólinn í hvítu og gylltu Framleiðendur hins umrædda kjóls vilja koma til móts við þá sem sjá kjólinn öðruvísi en aðrir. 27. febrúar 2015 13:31 Kjóllinn er svartur og blár... eða hvað? Söguna af umdeildasta kjól ársins má rekja til myndar sem mamma sendi dóttur sinni til að sýna henni kjólinn sem hún ætlaði að vera í við brúðkaup dótturinnar. 27. febrúar 2015 12:11 Hvers vegna erum við ekki sammála um litinn á kjólnum? Þeir sem sjá litina í kringum kjólinn sem dökka eru líklegri til að sjá það bláa í kjólnum sem hvítt og það svarta sem gyllt. 27. febrúar 2015 13:01 Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Gullmoli í Giljalandi Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ Sjá meira
Ætla að framleiða kjólinn í hvítu og gylltu Framleiðendur hins umrædda kjóls vilja koma til móts við þá sem sjá kjólinn öðruvísi en aðrir. 27. febrúar 2015 13:31
Kjóllinn er svartur og blár... eða hvað? Söguna af umdeildasta kjól ársins má rekja til myndar sem mamma sendi dóttur sinni til að sýna henni kjólinn sem hún ætlaði að vera í við brúðkaup dótturinnar. 27. febrúar 2015 12:11
Hvers vegna erum við ekki sammála um litinn á kjólnum? Þeir sem sjá litina í kringum kjólinn sem dökka eru líklegri til að sjá það bláa í kjólnum sem hvítt og það svarta sem gyllt. 27. febrúar 2015 13:01