
Button: Vonandi verður Alonso fljótari en ég

Austurríski kappaksturinn fer fram um helgina. Eðlilega skýringu er að finna á orðum heimsmeistarans frá árinu 2009. Skýringin er að Alonso ekur mikið uppfærðum bíl annað en Button sjálfur sem ekur óbreyttum bíl frá síðustu keppni.
McLaren var bara reiðubúið með einn uppfærðan bíl og þar sem Button fékk að njóta breytinga í Kína fær Alonso núna að njóta.
„Það er skrýtið að segja það en já ég vona það,“ sagði Button, aðspurður hvort hann óskaði þess að enda aftar en Alonso.
Báðir eru ökumennirnir líklegir til að hljóta refsingu fyrir að hefja notkun á nýrri vél um helgina.
„Frá keppnissjónarhorni er sennilega betra að koma refsingunum frá áður en við förum til Ungverjalands, brautin þar er líkleg til að henta okkur vel,“ sagði Button.
Button vill líka helst fá að njóta góðrar heimakeppni á Silverstone, sem er næsta keppni á eftir þeirri um helgina.
Tengdar fréttir

Nýtt útlit hjá McLaren
McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Bílskúrinn: Mercedes með martraðir
Eftir rólega byrjun stóð Mónakó kappaksturinn undir væntingum hvað varðar glundroða og upplausn. Þvílíkir lokahringir sem leiddu til þess að Nico Rosberg vann og Sebastian Vettel varð í öðru sæti.

Alonso: Held við náum í stig í Mónakó
McLaren mun ná í sín fyrstu stig í ár í keppninni í Mónakó um helgina ef marka má orð annars ökumanna liðsins, Fernando Alonso.

Wolff: Við erum ekki alltaf hálfvitar
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark, Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Bottas var jafnframt fyrsti ökumaðurinn sem kemst á verðlaunapall í ár sem ekur ekki fyrir Mercedes eða Ferrari. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Bílskúrinn: Endurkoman í Kanada
Lewis Hamilton kom til baka eftir vonbrigðin í Kanada, Nico Rosberg glímdi við bremsuvandamál og Valtteri Bottas komst á verðlaunapall.

Massa: Mikilvægt að setja pressu á Ferrari
Felipe Massa annar ökumanna Williams liðsins í Formúlu 1 segir að það sé mikilvægt fyrir liðið að setja pressu á Ferrari í nánustu framtíð.