Lífið

Eiga von á sínu þriðja barni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Coleen Rooney og Wayne Rooney hafa verið saman lengi en þau giftu sig árið 2008.
Coleen Rooney og Wayne Rooney hafa verið saman lengi en þau giftu sig árið 2008. vísir/getty
Knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney og eiginkona hans, Coleen Rooney, eiga von á sínu þriðja barni en Rooney greindi frá þessu fyrir skemmstu á Facebook-síðu sinni.

Fyrir eiga hjónin tvo drengi, þá Kai, 5 ára, og Klay, 2 ára. Wayne og Coleen hafa verið saman í fjölda ára en þau giftu sig árið 2008.

Wayne Rooney spilar með úrvalsdeildarliði Manchester United en Coleen hefur starfað í sjónvarpi og sinnt pistlaskrifum fyrir dagblöð á Englandi.

Delighted that me and Coleen Rooney have our 3rd child on the way 󾮗🏻󾌰

Posted by Wayne Rooney on Wednesday, 8 July 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×