„Syngjandi gleði allan tímann“ á Húkkaraballinu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 31. júlí 2015 09:40 Páll Óskar hélt uppi stuðinu í gærkvöldi. Hann þakkar gestum fyrir að hafa hagað sér eins og englar. Vísir/Óskar Friðriksson
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, skemmti gestum á Húkkaraballinu í Vestmannaeyjum í kvöld en ballið var í fyrsta sinn haldið inni í Höllinni í Eyjum í ár. Óskar Friðriksson, ljósmyndari Vísis, var á staðnum og náði að fanga stemninguna á stafræna filmu en af myndunum að dæma skemmtu gestir sér konunglega. Myndalbúmið má nálgast hér að neðan. „Ég tók ákvörðun um að færa sjóvið inn, veðurspáin var vægast sagt hrikalega slæm. Rok og rigning í kortunum,“ útskýrir Páll Óskar. „En svo gekk veðurspáin ekkert eftir. Veðrið var dásamlegt. Ég hafði mestar áhyggjur af því klukkan hálfellefu í gærkvöldi að ekki nokkur maður myndi koma inn í húsið, allir yrðu bara fyrir utan á trúnó. En það var ekki raunin, gestirnir hrúguðust inn um leið og við snerum hurðarhúnunum.“Páll segir gríðarlega stemningu hafa verið á staðnum og að húsið hafi verið troðið til þrjú í nótt. „Það voru ekki teljandi slagsmál eða neitt, syngjandi gleði allan tímann. Ég vil þakka Húkkaraballsgestum fyrir að hafa hagað sér eins og englar,“ segir Páll sem verður á ferð og flugi um helgina. Pallaballið í gær í Eyjum var fjögurra tíma skemmtun þar sem hann blandar saman sínu efni og öðrum vinsælum lögum. En Palli fær ekki mikla hvíld í dag. „Ég er nývaknaður en er að undirbúa mig undir barnaskemmtun niðri í Dal í dag. Þar verða myndatökur fyrir þá sem vilja pósa með poppstjörnu,“ segir Páll og hlær. „Svo legg ég af stað norður á Akureyri, tek daginn í það. Þar verður Ein með öllu á Akureyri á morgun með tilheyrandi Sjallaballi. Svo fer ég aftur til Eyja á sunnudaginn, byrja og enda í Vestmannaeyjum.“ Páll kemur fram með hljómsveitinni Buff í Herjólfsdal á sunnudag auk þess sem hann heldur uppi skemmtuninni á Pallaballi í Eyjum frá klukkan þrjú til sex um morguninn.Höllinn var full af fólki sem var svo sannarlega mætt til að skemmta sér.Vísir/Óskar Friðriksson
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Fleiri fréttir Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Sjá meira