Kirkjutröppuhlaup, drullubolti og brekkusöngur: „Það verður drullugaman“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 31. júlí 2015 13:02 Hvert ætlar þú að fara um verslunarmannahelgina?
Nú er ein stærsta ferðahelgi að ganga í garð. Fjölbreytt dagskrá verður víða um land og ættu flestir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Má þar nefna brekkusöng í Vestmannaeyjum, kirkjutröppuhlaup á Akureyri og fótboltamót í hnjédjúpri drullu. Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, skíthæll og einn skipuleggjanda Mýrarboltans á Ísafirði, á von á miklu fjöri í bænum um helgina. „Það verður drullugaman eins og alltaf og svo eru tónleikar og böll á kvöldin og nóg um að vera í bænum. Þetta hefur lífgað mikið upp á bæjarlífið hérna,“ segir hann. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum má ekki gleyma en hún hefur verið haldin árlega frá þarsíðustu aldamótum. Þúsundir sækja hátíðina heim um hverja verslunarmannahelgi og verða fastir liðir á sínum stað; tónleikar á brekkusviðinu, flugeldasýning og auðvitað brekkusöngurinn sem Ingó veðurguð mun stýra. Norður á Akureyri verður hátíðin ein með öllu, en þar má búast við fjölskylduvænu fjöri. Att verður kappi í hinu árlega kirkjutröppuhlaupi, leikhópurinn Lotta stígur á svið og óskalagatónleikarnir verða haldnir í Akureyrarkirkju. Á sama tíma verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið í fyrsta sinn á Akureyri og búist er fjölmenni, enda eru keppnisgreinar fleiri en nokkru sinni fyrr. „Öll Akureyri er undirlögð af alls konar litlum og stærri viðburðum. Það eru yfir tíu útitónleikar, tvö tívolí og svo mætti lengi telja, þannig að það er mikið að gerast á einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina,“ segir Halldór Óli Kjartansson, einn skipuleggjenda Einnar með öllu. Fjölskylduhátíðin Neistaflug verður haldin á Neskaupsstað, en hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1993. Þá má jafnframt nefna Kotmót Hvítasunnukirkjunnar í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð og Sæludaga í Vatnaskógi. Innipúkinn verður haldinn í Reykjavík og er dagskráin með glæsilegasta móti, en hún er haldin á sömu stöðum og í fyrra, eða samtímis á tónleikastöðunum Húrra og Gauknum sem liggja báðir við Naustin í Kvosinni. Þá verður veðurspá með ágætum og ekki stefnir í mikla rigningu. Hiti verður tíu til sextán stig, en fimm til tíu stig norðan- og austanlands.
Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Lífið Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Tónlist Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Lífið Harry og Meghan séu ekki að skilja Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Lífið Henti listaverkinu í ruslið Menning Hafi enn verið hreinn sveinn Lífið Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Lífið Fleiri fréttir Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Sjá meira