Lífið

Sjáðu umtalað hláturskast Sigmars í Útsvari: „Ég get ekki hætt“

Birgir Olgeirsson skrifar
Sigmar átti erfitt með sig í síðasta Útsvarsþætti.
Sigmar átti erfitt með sig í síðasta Útsvarsþætti. Skjáskot af vef RÚV
Síðasti þáttur af Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, er ansi umtalaður þessa dagana. Ekki vegna frammistöðu keppenda heldur vegna hláturskasts spyrilsins Sigmars Guðmundssonar.

Lið Reykjanesbæjar og Fjarðarbyggðar áttust við í síðastliðinn föstudag og ljóst frá upphafi þáttar að það var mjög létt yfir bæði spyrlum og keppendum. Þegar komið var að valflokkaspurningum voru keppendur spurðir hvað Páskaeyja kallast á á máli heimamanna. Hvorugu liðinu tókst að svara spurningunni rétt og uppljóstraði Sigmar að eyjan heitir Rapa Nui á frummálinu.

Sjá einnig:Stórkostleg hlátursköst - Allt frá Loga Bergmann til Péturs Blöndal

„Hættu!“

„Hver veit það?,“ spurði Þóra hlæjandi í kjölfarið. „Þóra er búin að hafa mjög gaman af þessari spurningu alla vikuna,“ sagði Sigmar í kjölfarið hlæjandi og var ekki aftur snúið.

Í næsta valflokki sagði Þóra: „Allar þessar spurningar draga dám af tám“ og átti Sigmar augljóslega erfitt með sig í kjölfarið. „Hættu!,“ sagði Þóra góðlega við Sigmar sem svaraði hlæjandi: „Ég get ekki hætt.“

Þegar Sigmar ætlaði síðan að bera upp spurningu um dægurlag frá áttunda áratug síðustu aldar gat hann ekki klárað spurninguna og varð að biðja Þóru um að klára hana.

„Ég trúi ekki að þetta sé að gerast,“ sagði Sigmar. „Eftir 202 þætti,“ bætti Þóra við. 

Hann baðst svo afsökunar á þessu hláturskasti í lok þáttar. „Það getur verið rosalega erfitt að hætta að hlæja.“

Telur þetta vera fyrsta hláturskast Sigmars

Vísir.is ákvað að heyra í Þóru vegna þessarar uppákomu en hún segir líklegustu útskýringuna á hláturskasti Sigmars vera innbyggt hláturskast frá síðustu viðureign í Útsvari. „Stundum er það bara þannig ef þú færð hláturskast þá er bara erfitt að hætta því. Það hafa allir lent í því einhvern tímann. Á öllum hans ferli þá held ég að þetta sé í fyrsta sinn sem það hefur gerst hjá honum,“ segir Þóra.

„Ég verð bara að segja að ég er ákveðið stolt af mér að hafa haldið stjórn á þessu,“ segir Þóra létt i bragði. „Ég held að það hafi komið fyrir nánast alla að fá hláturskast, og er þetta ekki skemmtiþáttur?“

Nútíminn.is klippti saman þetta hláturskast Sigmars og birti á myndbandavef YouTube en myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Hægt er að horfa á þáttinn í heild á vef RUV.is


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×