Lífið

Heard fékk snekkju í brúðargjöf

Johnny Depp og Amber Heard ætla að sigla um á Amphitrite.
Johnny Depp og Amber Heard ætla að sigla um á Amphitrite. Vísir/Getty
Johnny Depp hefur endurnefnt snekkjuna sem hann sigldi á með fyrrverandi ástkonu sinni og barnsmóður, Vanessu Paradis.

Leikarinn gaf nýrri eiginkonu sinni, Amber Heard, snekkjuna í brúðargjöf og ákvað að nefna hana Amphitrite eftir forngrísku sjávargyðjunni. Snekkjan hét áður Vajoliroja í höfuðið á honum, Paradis og börnunum þeirra Lily-Rose og Jack.

Auk þess að gefa Heard snekkjuna fékk leikkonan einnig tvo hjaltlandssmáhesta að gjöf. Hjónin giftust í Los Angeles á þriðjudag og ætla að endurnýja heitin í dag á Amber Beach, sem er eyja í eigu Depp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×