Lífið

Grammy verðlaunin: Bein útsending á twitter

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Þau eru tilnefnd til Grammy verðlauna 2015
Þau eru tilnefnd til Grammy verðlauna 2015 Vísir/getty
Grammy verðlaunin verða afhend í 57. sinn í nótt.

Sam Smith, Beyoncé og Pharrel Williams eru með flestar tilnefningar, öll með sex. Iggy Azalea, Jay Z, Sia, Usher og Jack White eru meðal þeirra sem fylgja fast á eftir með fimm tilnefningar.

Á hátíðinni mun koma fram fjöldi listamanna meðal annars Katy Perry, Ed Sheeran, Madonna, Coldplay, John Legend, Rihanna og fleiri. Kynnar á hátíðinni verða heldur ekki af verri endanum en þar má nefna Foo Fighters rokkarann Dave Grohl, sjónvarpsmanninn yndæla James Corden, Gwyneth Paltrow, Nile Rogers og Nick Jonas. 



Lista yfir allar tilnefningar má finna hér. 

Twitter vaktin verður opin og má fylgjast með twitter síðu Grammy verðlaunanna hér fyrir neðan og hashtag-inu #grammys2015. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×