Innlent

Slátrurum og bændum haldið í gíslingu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Jón Björnsson segir skort á nautakjöti leggja rekstur hamborgarastaða í rúst.
Jón Björnsson segir skort á nautakjöti leggja rekstur hamborgarastaða í rúst. Fréttablaðið/GVA
Jón Björnsson
Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, og Jón Björnsson, forstjóri Festar, segja mikinn skort á nautakjöti í verslunum fyrirtækjanna. Hið sama kemur fram í fréttatilkynningu sem Hagar sendu frá sér á fimmtudag.

Samkaup rekur verslanir Samkaupa Úrvals, Samkaupa Strax, Nettó og Kaskó, Festi rekur verslanir Krónunnar, Kjarvals og Nóatúns og Hagar reka verslanir Bónuss og Hagkaups.

Ómar segir ástandið í verslunum almennt ágætt. Nóg sé til af lambi, svíni og frosnum kjúklingi en skortur sé á nautakjöti. „Okkur hefur gengið vel að halda uppi framboði. Við höfum nýtt okkur aðrar lausnir, til dæmis með því að bjóða upp á meiri kalkún,“ segir Ómar.

Hljóðið er þyngra í Jóni Björnssyni.

„Ég held það sé komið gott af nautakjötsskorti. Það er til nóg af kjúklingi, svíni og lambi en engir hamborgarar og þar er opinber stofnun að halda fyrirtækjum í gíslingu, ekki okkar fyrirtæki heldur kjötvinnslum og nautgripabændum. Það er svakalegt að opinber stofnun haldi þeim í gíslingu,“ segir Jón og vísar til verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun.

Jón segir verslanir Festar ekki geta leyst út hinar ýmsu vörur af hafnarbakkanum vegna verkfallsins og að nú séu einhverjar þeirra farnar að skemmast. „Þá erum við komin í matarsóun sem er af völdum hins opinbera,“ segir Jón sem spyr hvort það sé virkilega nauðsyn að fá vottun íslenskra dýralækna til viðbótar við vottun dýralæknis frá upprunalandi vörunnar.

„Verslunin er í mun betra ástandi en sumir veitingastaðir. Ef þú ert að reka hamborgarastað færðu enga hamborgara, þá er bara verið að leggja bisnessinn þinn í rúst,“ segir hann.

Jón segist ánægður með nýja kjarasamninga. Hann sé sáttur við að samningar séu til lengri tíma því þá er auðveldara að taka ákvarðanir um fjárfestingar. Ómar er einnig sáttur við lengd samninga.

„Það er ljóst að það verður mikil áskorun að takast á við þann kostnað sem fylgir hærri launum en á móti kemur að þetta eru samningar til langs tíma, það gefur fyrirtækjum séns á að vinna úr stöðunni á löngum tíma,“ segir Ómar um samningana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×