Viðskipti innlent

LÍN upplýsir átta þúsund manns um að þeir séu í ábyrgðum fyrir lánum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fjöldi bréfa til fólks sem erft hefur ábyrgðir á námslánum eru farin eða eru á leið í póst.
Fjöldi bréfa til fólks sem erft hefur ábyrgðir á námslánum eru farin eða eru á leið í póst. Vísir

Lánasjóður íslenskra námsmanna er byrjaður að senda fólki sem erfði ábyrgðir af námslánum hjá sjóðnum bréf til að upplýsa það um stöðuna. Samkvæmt upplýsingum frá Lín er um að ræða 5.400 lán en um átta þúsund einstaklingar eru í ábyrgðum fyrir þessi lán. Í mörgum er fólk ekki upplýst um að það sé ábyrgt fyrir lánum.

Sjá einnig: Ábyrgur fyrir láni í 13 ár án þess að vita af því

Leikarinn Bjartmar Þórðarson er einn þessara ábyrgðarmanna en Vísir sagði frá því í gær að hann hefði verið ábyrgur fyrir námsláni án þess að vita af því í þrettán ár. Móðir hans var áður ábyrg fyrir láninu og systkin hans tók en hún lést fyrir þrettán árum. Lánið sjálft er um 25 ára gamalt.

Ákveðið var að senda út bréf á alla erfingja ábyrgða lána hjá sjóðnum þegar Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir tók við sem framkvæmdastjóri LÍN. Vinna við undirbúning bréfsendinganna hefur staðið frá því síðasta haust, samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum.

Sjá einnig: „Verið að koma aftan að látnu fólki“

Málið hefur verið í sviðsljósinu eftir að Guðmundur Steingrímsson þingmaður, systkini hans og móðir stefndu sjóðnum vegna ábyrgða sem þau voru krafinn um vegna námsláns sem sonur Steingríms tók á ábyrgð föður síns. Þau töpuðu málinu í byrjun febrúar.

Lán þar sem ábyrgðarmenn hafa erft skuldbindingar sínar nema átján milljörðum króna en heildarútlán sjóðsins er 240 milljarðar króna.


Tengdar fréttir

Erfingjar Steingríms Hermannssonar töpuðu fyrir LÍN

Erfingjar Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi formanns Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd ábyrg fyrir láni sem Steingrímur gekkst í ábyrgð fyrir son sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×