Þór Bæring Ólafsson, framkvæmdastjóri Gamanferða, sem bjóða upp á pakkaferðir á leiki Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu í Frakklandi næsta sumar, segir að mun meiri áhugi sé á ferðunum en hann bjóst við.
„Ferðirnar fóru í sölu í gærkvöldi og það stefnir allt í að það verði uppselt í þær í dag eða á morgun. Þetta er rosaleg ásókn,“ segir Þór í samtali við Vísi en alls eru 400 miðar í boði í þessar fyrstu pakkaferðir sem Gamanferðir setja í sölu.
Sjá einnig: Þetta þarftu að vita um miðasöluna á EM 2016
Hægt er að velja um pakka á einn leik í riðlakeppninni, pakka á leiki númer 1 og 2, pakka á leiki númer 2 og 3 og svo pakka á alla leikina. Innifalið er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Ekki eru miðar á leikina innifaldir þar sem íslenskar ferðaskrifstofur geta ekki sótt um miða í gegnum miðasölukerfi Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.
„Einstaklingar geta bara sótt um miða sjálfir og ég geri fastlega ráð fyrir því að þeir sem eru að kaupa pakkaferðir hjá okkur séu búnir að sækja um miða eða ætli sér að gera það,“ segir Þór.
Sjá einnig: Ísland í riðli með Portúgal, Austurríki og Ungverjalandi
WOW air flýgur til þriggja áfangastaða í Frakklandi næsta sumar, Parísar, Nice og Lyon. Að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa flugfélagsins, þrettánfaldaðist salan á flugmiðum til Frakklands um helgina eftir að fyrir lá hvar íslenska landsliðið myndi spila sína leiki. Þá sautjánfaldaðist salan á miðum til Parísar.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að þar á bæ skynji menn líka áhugann á EM en þó einnig að fólk þurfi tíma til að átta sig á hlutunum. Þá hyggst flugfélagið kynna á næstunni ýmsa valkosti fyrir þá sem vilja fylgja landsliðinu á stórmótið.
„Rosaleg ásókn“ í pakkaferðir á EM í Frakklandi

Tengdar fréttir

Kemst Ísland upp úr riðlinum? Bjartsýnin minnir á Gleðibankann 1986
Spekingarnir og aðdáendurnir hafa sagt sína skoðun. En hvað finnst þér?

Ísland fær 34 þúsund miða á EM | Miðasala hefst í dag
Aðeins sjö þúsund miðar í boði fyrir Íslendinga á leikinn gegn Portúgal.