Gömlu Þórsararnir að keppa um markakóngstitilinn í 3. deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2015 17:00 Vísir/Arnþór
Jóhann Þórhallsson og Orri Freyr Hjaltalín eru jafnaldrar og báðir uppaldir Þórsarar þar sem þeir unnu meðal annars Íslandsmeistaratitil saman í 3. flokki 1996. Þeir skiptu báðir úr Þór í vetur og fóru í sitthvort 3. deildarliðið. Jóhann Þórhallsson spilar með Völsungi á Húsavík og Orri Freyr Hjaltalín með Magna á Grenivík. Nú er svo komið að þeir félagar eru eins og er markahæstu leikmenn 3. deildarinnar með sex mörk hvor. Engir leikmenn í deildinni hafa náð því það sem af er tímabilinu. Jóhann hefur skorað sín mörk í sex leikjum en Orri Freyr í sjö en eru báðir vítaskyttur sinna liða. Orri Freyr og félagar í Magna eru taplausir í toppsæti deildarinnar en Völsungar eru í 7. sæti. Orri Freyr skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Magna á Völsungi í maí. Jóhann og Orri Freyr spiluðu saman með Þór í Pepsi-deildinni frá 2013 til 2014 en höfðu þá ekki verið samherjar hjá Þórsliðinu í áratug. Þeir léku þó saman í Grindavík sumarið 2006. Það er sérstaklega eftirminnilegt þegar þeir félagar skoruðu saman 29 mörk í framlínu Þórsliðins í 1. deildinni 2001 en Þór vann þá deildina og komst upp í úrvalsdeildina.
Íslenski boltinn Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira