Erlent

Mega nú borga lausnargjald fyrir fjölskyldumeðlimi

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fjölskyldum gísla verði ekki hótað lögsókn borgi þeir lausnargjald.
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fjölskyldum gísla verði ekki hótað lögsókn borgi þeir lausnargjald. Vísir/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að leyfa fjölskyldum einstaklinga sem teknir hafa verið sem gíslar að greiða lausnargjald.

Hingað til hefur fjölskyldum og öðrum verið hótað lögsókn af hálfu ríkisins gangi þeir til samninga við gíslatökumenn og greiði fyrir að fá einstaklinga leysta úr haldi.

Ákvörðunin er tekin eftir endurskoðun á stefnu stjórnvalda sem ráðist var í eftir að nokkrir bandarískir ríkisborgarar létust í haldi gíslatökumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×