Lífið

Nýtt afkvæmi á leiðinni

Íslandsvinurinn er aldeilis ekki dauður úr öllum æðum, og sennilega nóg til á þesum bæ.
Íslandsvinurinn er aldeilis ekki dauður úr öllum æðum, og sennilega nóg til á þesum bæ.
Gamla brýnið Rod Stewart sendi frá sér yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni á dögunum þar sem hann tilkynnti heimsbyggðinni að hann væri að verða faðir enn á ný.

Nema hvað, næsta barnið er platan sem kappinn vinnur að í augnablikinu, en ekki níunda barnið líkt og margir hefðu haldið.

Áætlaður fæðingardagur er ekki kominn á hreint, en októbermánuður á þessu ári er staðfestur.

Platan mun bera nafnið Another Country og verður eins konar útkoma alls konar tilraunastarfsemi Stewarts, þar sem hann reynir meðal annars fyrir sér í reggítónlist og þjóðlagaskotinni tónlist. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×