„Þetta er til að vekja stjórnvöld og neytendur til vitundar um það að sumar vörur sem koma frá Ísrael eru ekki innan viðurkenndra landamæra þess ríkis, heldur koma þær frá ólöglegum landnemabyggðum á hernumdum svæðum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og einn flutningsmanna tillögunnar. „Þessar byggðir stríða gegn alþjóðlega viðurkenndum landamærum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna.“

Mikilvægt að ræða stöðu Íslands gagnvart Ísrael
Katrín segir það tilviljun að tillagan sé aftur lögð fram á sama tíma og deilt er um samþykkt Reykjavíkurborgar á viðskiptaþvingunum gagnvart Ísraelsríki. Hún segir þó mjög mikilvægt að staða Íslands gagnvart Ísrael sé rædd og að engan þurfi að undra að tillaga borgarstjórnar hafi vakið viðbrögð.
„Það er mjög mikilvægt að við áttum okkur á því að við höfum lýst yfir viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu og það skiptir máli að sýnum það í verki að við andmælum þeim mannréttindabrotum sem þar eru framin,“ segir Katrín.
Aðspurð hvort hún telji það skynsamlegra að gefa íslenskum neytendum kost á því að sniðganga vörur frá hernumdum svæðum frekar en að koma á viðskiptabanni eða –þvingunum, segist Katrín til í að ræða seinni kostinn.
„Þetta er eitt skref,“ segir hún. „Mér finnst alveg ástæða til að ræða hitt en það þarf auðvitað að gera í alþjóðlegu samhengi líka.“