Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari þarf ekki að víkja sæti í Aurum Holding-málinu. Guðjón kvað sjálfur upp úrskurður þess efnis í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hafði krafist þess að Guðjón viki í málinu vegna vanhæfis.
Í málinu er
u þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Þeir voru sýknaðir í héraðsdómi en málinu var vísað aftur heim í héraðvegna vanhæfis eins héraðsdómara, Sverris Ólafssonar.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. Verjendurnir telji hana rétta. Hann upplýsir að Sérstakur saksóknari hafi lýst því yfir í dómssal í morgun að hann ætlaði að hann ætlaði að taka sér tíma til að meta næstu skref. Hann á þess kost að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. Ekki náðist í Ólaf Þór við vinnslu fréttarinnar.
Guðjón mun í framhaldinu tilkynna meðdómara sína. Ljóst er að Sverrir Ólafsson verður ekki einn þeirra en ekki liggur fyrir hvort Arngrímur Ísberg sitji áfram. Þó er ljóst að öll aðalmeðferðin mun þurfa að fara fram á nýjan leik sem þýðir að tugir vitna þurfa að mæta aftur fyrir dóm enda verður nýr dómari í brúnni.
Ákæruna má sjá hér að neðan.
Uppfært klukkan 13:10
Ekki kom fram skilmerkilega í fyrri útgáfu fréttarinnar að Guðjón St. hefði sjálfur kveðið upp úrskurðinn um hæfi sitt til að dæma í málinu.
Guðjón þarf ekki að víkja

Tengdar fréttir

Sérstakur saksóknari telur dómsformann í Aurum-málinu hliðhollan sakborningum
Munnlegur málflutningur um kröfu ákæruvaldsins þess efnis að Guðjón St. Marteinsson víki sæti í Aurum-málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Telja að dómarinn hafi ekki tekið afstöðu til sakarefnisins með skrifum sínum
Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding, fór fram á það fyrir dómi í dag að ekki yrði fallist á kröfu sérstaks saksóknara þess efnis að Guðjón St. Marteinsson, dómsformaður, víki sæti í Aurum-málinu vegna vanhæfis.

Aurum-málinu frestað þar sem skjölum var ábótavant
Verjendur töldu ekki ljóst á hverju krafa sérstaks saksóknara byggði og var málinu því frestað til 14. september.