Félagsmenn SFR stéttarfélags, sjúkraliðar og lögreglumenn hyggjast fjölmenna fyrir utan stjórnarráðið í dag og krefjast sambærilegra kjara og ríkið hefur samið um við aðra starfsmenn þess. Fundurinn hefst klukkan 9.15, rétt áður en ríkisstjórnarfundur hefst.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, boðaði til fundarins á samstöðufundi á Austurvelli í gær, við góðar undirtektir verkfallsfólks.
Í gær var fyrri dagurinn í tveggja daga verkfallslotu SFR og sjúkraliða sem lýkur á miðnætti í kvöld. Næsta lota er frá mánudegi til þriðjudags. Þar fyrir utan er hafið ótímabundið verkfall á Landspítala, hjá Ríkisskattstjóra, Tollstjóra og sýslumannsembættum landsins.
Alls eru fyrirhuguð fimm tveggja daga skæruverkföll fram í miðjan næsta mánuð, en þá tekur við ótímabundið verkfall á öllum vígstöðvum hafi ekki samist. Verkföllin valda röskun á starfsemi nær allra vinnustaða ríkisins, en þeir eru 159 talsins.
Samstöðufundur verkfallsfólks við Stjórnarráðið
Tengdar fréttir
Lögreglumenn hringja sig inn veika í Leifsstöð
Búast má við meiri töfum í Leifsstöð í dag en í gær, þar sem nokkrir lögregluþjónar, sem sinna landamæraeftirliti, hafa tilkynnt forföll vegna veikinda. Þetta á við um Ameríkuflugið og flug til Bretlands.
Hverjir leggja niður störf í verkfallinu?
Sex þúsund ríkisstarfsmenn hafa lagt niður störf.
Skjótast milli húsa undan verkfallinu
Forsvarsmenn ríkisstofnana vöknuðu upp við vondan draum í gær þegar starfsemi fjölda stofnana nær lamaðist vegna verkfalla SFR og sjúkraliða.
Ólöf Nordal styður ekki verkfallsrétt lögreglumanna
Innanríkisráðherra telur betra að kjör lögregluþjóna ráðist við samningaborðið en að þeir fái verkfallsrétt.
Landlæknir: Fáheyrt að menn beiti fyrir sig sjúklingum með þessum hætti
Birgir Jakobsson segir að heilbrigðiskerfið hafi goldið verulega fyrir síendurtekin verkföll að undanförnu.