Lífið

Edrú í Ástralíu: Ásgeir Trausti lifir heilsusamlega

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Ásgeir Trausti er í flottu formi.
Ásgeir Trausti er í flottu formi.
Söngvarinn Ásgeir Trausti drakk ekkert á tónleikaferðalagi sínu í Ástralíu, en hann sló í gegn á túrnum, hlaut lof gagnrýnenda auk þess sem lag hans, King and Cross, var valið eitt af tíu bestu lögum ársins hjá stórri útvarpsstöð.

„Á síðasta túr sleppti ég alveg að drekka og það var frábært. Þá er maður meira „on it“, sefur betur og hreyfir sig frekar. Annars er alltaf nóg af áfengi í boði þar sem maður kemur á þessum ferðalögum," segir hann í samtali við Fréttastofu.

Hann segist reyna að lifa heilsusamlegu lífi, en það geti reynst erfitt þegar maður er á stöðugu ferðlagi.

Sjá einnig:Ásgeir í tónleikaferð með alt-J um Ástralíu

„Ég byrjaði í átaki á síðasta Ástralíutúr. Ég reyni að hreyfa mig á hverjum degi og hef gaman af því að lyfta. Það erfiðasta við það er að maður þarf að reikna út daginn, hvenær maður hefur tíma. Svo þarf maður að finna sér líkamsræktarstöð á þeim stað þar sem maður er.“

Ásgeir Trausti og félagar borðuðu kebab rétt fyrir miðnætti á gamlárskvöld.
Síðasta ár var mjög annasamt hjá Ásgeiri í tónleikahaldi og sér hann einnig fram á annasamt ár 2015. Hann mun ferðast um Bandaríkin og Ástralíu og halda tónleika. „Þetta ár verður samt annasamt að öðru leyti. Við tökum þennan Bandaríkjatúr með Hozier, komum svo heim í tvo mánuði og förum svo með alt-J.“

Sjá einnig:Ástralir elska Ásgeir Trausta

Ásgeir Trausti hefur heillað ástralska áhorfendur og gagnrýnendur upp úr skónum. Útvarpsstöðin Triple J efndi til kosningu yfir bestu lög ársins 2014. Þar lenti Ásgeir Trausti í tíunda sæti með lagið King and Cross.

Alls tóku tvær milljónir hlustenda þessarar ríkisreknu útvarpsstöðvar þátt í kosningunni.

Sjá einnig:Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlársdag

Ásgeir hefur einnig hlotið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína á tónleikum í Ástralíu. Hann hélt tónleika í janúarbyrjun í hinni þekktu tónleikahöll Sydne Opera House. Ástralskir fjölmiðlar kepptust um að lofa kappann. Í síðasta mánuði birti Vísir frétt þar sem umfjöllun fjölda gagnrýnenda var tekin saman og voru þeir sammmála um að Ásgeir Trausti væri magnaður á sviði.

Ásgeir Trausti hefur slegið í gegn í Ástralíu.

Tengdar fréttir

Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlárskvöld

Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Ástralíu síðan í desember. Í kvöld spilar hann tvívegis í Óperuhúsinu í Sydney. Með á sviðinu verða sjö meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Sydney. Á morgun lýkur síðan ferðalaginu með giggi í Melbourne. Þrennir tónleikar eru svo fram undan í Japan og að þeim loknum fer Ásgeir í langa tónleikaferð um Bandaríkin. Fréttastofa fékk sendar nokkrar skemmtilegar myndir frá túrnum um Ástralíu.

Ásgeir Trausti í Billboard

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti er einn þriggja flytjenda sem fjallað var um á vefsíðu bandaríska tímaritsins Billboard í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×