Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Undarleg atburðarás á frystitogara

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram næstu helgi. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla sendir frá sér myndina Das Schiff.

Leikarar: Jónína Sigurðardóttir, Björn Rúnarsson, Stefán Andrésson,

Daði Laxdal Gautason og Jórunn Sif

Leikstjóri, klipping og myndataka: Björn Rúnarsson

Um myndina:Tvær ungar stúlkur koma sér í klandur og þurfa að vinna á gömlum fiskitogara í 5 vikur undir stjórn kapteins Krisoffs sem er ekki allur þar sem hann er séður. Og undarleg atburðarrás á sér stað.

Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×