Fékk lifandi selorma í fiskréttinum: Þarf oft meira til en tískueldun Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. júlí 2015 21:30 Fjórða stigs lirfa hringormsins Pseudoterranova decipiens, áþekk þeirri sem Sóley fann í þorskréttinum. Mynd/Getty/Karl Skírnisson „
Þegar ég var við það að hefja upp raust mína bætti sessunauturinn hins vegar við eftirfarandi óhugnaðarupplýsingum: „Ormurinn er lifandi.“ Svona lýsir Sóley Kaldal því þegar hún og samferðamaður hennar fengu lifandi selorma í fiskréttum sem þau höfðu pantað á veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Selormar eru sníkjudýr sem lifa í þorski en lokahýsill þeirra og kjörlendi er hins vegar í sel. Þó svo að það sé ekkert tiltökumál að rekast á orma í fisknum og að engum verði meint af því að éta einn dauðan orm segir dýrafræðingur því hins vegar ekki eins farið þegar ormurinn er ennþá á lífi. Sóley segist eftir máltíðina hafa haft samband við kokk staðarins til að ítreka atvikið. „Hann sagði að þau elduðu fiskinn við ca. 65°C en ormarnir dræpust stundum ekki fyrr en við 85°C. Þegar ég spurði af hverju þeir elduðu þá ekki fiskinn tryggilega við það hitastig sagði kokkurinn að við það myndi hann bara „skemma fiskinn,“ segir Sóley. „Þegar líða tók á daginn fór atvikið að valda mér hugarangri og eins og ábyrgri þungaðri konu sæmir, hringdi ég í ljósmóður til að athuga hvort mér eða barni yrði meint af mögulegu lifandi-ormaáti. Það var fátt um svör,“ segir Sóley sem bætir við að hún hafi þá einnig haft samband við aðra heilbrigðisstarfsmenn og kvensjúkdómalækni sem einnig þekktu lítið til mögulegrar skaðsemi sníkilsins. Dýrafræðingurinn Karl Skírnisson segir í samtali við Vísi að selormur geti, leynist hann lifandi í fiskréttum, fundið sér lífvænlegar aðstæður í magasekk mannfólks. Nái ormur að komast lifandi ofan í maga fólks getur hann borað þar sár með tilheyrandi kvölum og vanlíðan hýsilsins.Karl Skírnisson, dýrafræðingur.mynd/keldurKarl segir að nokkur slík dæmi hafa komið upp á Íslandi á undanförnum árum. Hann rekur tvö slík dæmi í grein sem hann ritaði í Læknablaðið árið 2006. Í báðum tilvikum hafði ungt fólk borðað létteldaðan steinbít og nokkrum dögum síðar orðið vart við ertingu í hálsi og munnholi. Við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða lirfur hringorsmins Pseudoterranova decipiens sem báðar höfðu náð að þroskast í maga hýsilsins og að lokum skriðið upp vélindað og út um munn þeirra beggja. Karl segir í grein sinni að þessi hætta kunni að fylgja neyslu á hráu eða lítt hituðu sjávarfangi, sem hefur færst í vöxt á undanförnum árum og áratugum. Þá hafi neysla á hráum fiski í tilbúnum fiskréttum einnig aukist á undanförnum árum. „Brýnt er að fiskur sem notaður er í slíka rétti hafi áður verið vandlega ormahreinsaður (gegnumlýstur á ljósaborði) en öruggara er þó að hráefnið hafi áður verið fryst það lengi að lirfur í því séu örugglega dauðar“ segir Karl í grein sinni. Hefðbundnar aðferðir hér á landi við að matbúa fisk þar sem þess hefur verið gætt að sjóða eða gegnumsteikja fisk virðast hins vegar hafa dugað til að koma í veg fyrir að hringormar hafi komist lifandi ofan í menn. Hringormar í fiskholdi drepast við hitun upp fyrir 70°C í eina mínútu eða í 20°C frosti í vikutíma. Því kunni að vera betra að elda fisk upp á gamla mátann vilji fólk vera alveg visst um að ormarnir rati ekki lifandi ofan í meltingarveginn eða huga þeim mun betur að ormahreinsuninni. „Það smitast jú enginn af ormum sem eru teknir í burtu,“ eins og Karl kemst að orði.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Sjá meira