Rafmagnslaust og símabandslaust varð víða í Nepal í kjölfar skjálftans og segir Margrét að það hafi líklega liðið um fjórir tímar frá því skjálftinn reið yfir og þar til hún náði í Baal, sem er pabbinn á heimilinu.
„Börnin voru öll heima því það er laugardagur og enginn skóli. Við erum með 12 börn á okkar framfæri, svo eiga hjónin sem sjá um þau tvö börn og svo var systir konunnar einnig í húsinu. Þau hlupu öll út þegar jarðskjálftinn reið yfir en við erum heppin með að húsið okkar er nokkuð gott og það þoldi skjálftann,“ segir Margrét í samtali við Vísi.
Sjá einnig: Með ellefu börn á framfæri: Kaupi frekar grjón en merkjavöru
Hún segir þau ekki þora að vera í húsinu en eru búin að slá upp tjaldi á grasbletti skammt frá og dvelja þar núna.
„Börnin eru skiljanlega skelkuð og þora ekki að vera í húsinu. Það hafa komið margir snarpir eftirskjálftar og fólk óttast að það komi annar stór skjálfti.“

Margrét segir að börnin og fjölskyldan sem sér um þau séu með nægar birgðir af vatni og mat og það sé að vissu leyti heppilegt að heimilið sé í úthverfi borgarinnar.
„Þetta er nokkuð dreifbýlt svæði og það eru því ekki mörg hús þarna í kring. Ég er þó ekki viss um hvernig byggingum í næsta nágrenni hefur reitt af. Ég sá til dæmis myndir úr matvörubúð sem er í svona fjögurra kílómetra fjarlægð frá heimilinu og þar var allt í rúst.“
Margrét býr og starfar í Sádi Arabíu en hún hyggst fljúga út til Nepal í fyrri hluta næstu viku.
„Það á í raun eftir að koma í ljós hvort að það sé allt í standi með húsið, kannski hafa orðið einhverjar skemmdir, svo það þarf að kanna það. Svo langar mig auðvitað bara að fara og vera með börnunum og fjölskyldunni.“
Styrktarreikningur:
Þeir sem vilja vita meira um heimilið sem Margrét og félagar reka geta fundið upplýsingar á Facebook-síðu þeirra. Hægt er að styrkja heimilið með fjárframlögum. Reikningsnúmerið er: 526-26-6313 og kennitala: 631013-0310.