
Red Bull og Ferrari með auga á McLaren

Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari hefur varað við að liðin í toppbaráttunni vanmeti mögulega upprisu McLaren á næsta ári.
„Við munum örugglega sjá samkeppnishæfara McLaren lið á næsta ári, Honda er ekki einhver sem er rétt að vanmeta. Ég held að heimsmeistarakeppnin verði miklu áhugaverðari en þessi sem er nýlokið,“ sagði Arrivabene.
Newey telur að það sé frekar auðvelt að laga vandamál Honda á milli tímabila og þá telur hann að liðið muni rjúka upp listann.
„Ég held að Honda muni taka stórt skref, miðað við það sem við höfum séð. Ég held að vélarblokk þeirra sé ágætis vél,“ sagði Newey.
„Vandamál þeirra í ár hefur verið að rafallinn við túrbínuna var allt of lítill. En það er auðvelt að laga í vetur,“ bætti Newey við.
Newey varar við því að Red Bull gæti færst aftar í röðinni þegar liðin fyrir aftan taka framförum sem færa þau upp fyrir Red Bull.
„Að því gefnu að við hefjum tímabilið með sama afl og við höfðum árin 2014 og 2015, sem ég tel líklegt, þá munum við færast enn aftar,“ sagði Newey að lokum.
Tengdar fréttir

Sainz segir Toro Rosso geta staðið framar Red Bull 2016
Carlos Sainz, ökumaður Toro Rosso liðsins telur að liðið geti staðið framar Red Bull á næsta ári. Toro Rosso mun notast við Ferrari vél en Red Bull Renault vél.

Wolff: Liðið myndi springa með tvo Hamilton innanborðs
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins segir að ef hægt væri þá myndi hann ekki vilja hafa tvo Lewis Hamilton sem ökumenn. Hann telur að það yrði meira en liðið myndi höndla.

Red Bull notar Tag Heuer vél
Red Bull liðið mun nota Renault vél á næsta ári sem merkt verður úraframleiðandanum Tag Heuer.

McLaren á tvær sekúndur inni
Ökumenn McLaren liðsins, Fernando Alonso og Jenson Button telja tveggja sekúndna framfarir afar mögulegar í vetur. Þeir telja mögulegt að þeir muni berjast um verðlaunasæti á næsta ári.

Mercedes sakar verkfræðing Ferrari um njósnir
Mercedes ætlar að stefna fyrrum verkfræðingi sínum sem nú vinnur hjá Ferrari fyrir að afrita trúnaðarskjöl meðan hann vann enn hjá Mercedes.