Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri segist ekki treysta sér til þess að segja hver hlutfallsleg fjölgun í desember verður. ?Við vitum að samkvæmt okkar upplýsingum frá ferðaþjónustufyrirtækjum þá líta bókanir í desember vel út. En við vitum ekki hverju það skilar okkur í prósentum,? segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.
Samkvæmt upplýsingum frá Hótel Sögu verður herbergjanýtingin á Hótel Sögu um 75 prósent á aðfangadag og jóladag, en eykst svo verulega um áramótin.
Hildur Ómarsdóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Icelandair hótela, sagði við Vísi á dögunum að allt líti út fyrir að fullbókað verði á hótelunum Hilton Nordica, Reykjavík Marina og Reykjavík Natura um áramótin. Þá sé einnig mjög mikið búið að bóka um jólin.
Gamlárskvöld nýtur ekki síst mikilla vinsælda vegna flugeldanna og brennanna. Fréttablaðið ræddi við nokkra ferðamenn sem staddir voru á Skólavörðuholtinu í gær, sem hingað eru komnir til að njóta vetrarríkisins. Þeir ætla flestir að vera löngu farnir fyrir jól og áramót, en hafa margir séð norðurljósin eða dreymir um að sjá þau.
Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir að víða hafi verið skýjað undanfarin kvöld og ekki kjöraðstæður til þess að skoða norðurljósin.
Hún hafi hins vegar séð nokkrar norðurljósamyndir á Twitter sem bendi til þess að hér hafi myndast glufur til norðurljósaskoðunar. Hún telur mögulegt að hér skapist kjöraðstæður til að skoða norðurljósin yfir hátíðisdagana, einkum suðvestanlands og vestanlands.
Birta Líf segir að í kvöld verði mestar líkur á að sjá norðurljósin sunnalands, jafnvel vestanlands. ?En samt er það ekkert gulltryggt,? bætir Birta við.
Á morgun, Þorláksmessu, er gert ráð fyrir norðanátt og það verður skýjað um norðurlandið. ?Það kvöld er helst á Vesturlandi sem ég gæti ímyndað mér að væru aðstæður. Þá á að haldast þurrt og það gætu orðið einhverjar glufur,? segir Birta.
Þá er gert ráð fyrir prýðisaðstæðum suðvestan- og vestanlands á aðfangadagskvöld og jafnvel suðaustan- og austanlands. Miðað við spána sé þó gert ráð fyrir bestu aðstæðunum á jóladag, ef spáin helst óbreytt. ?Þá ætti að vera flennibjart og ískalt,? segir Birta og aðspurð segir hún að hér verði hugsanlega norðurljósajól. ?Það gæti verið,? segir hún.
Í Reykjavík á aðfangadag

Rachmaninoff er upprunalega frá Grikklandi en býr í Frankfurt og átti því tiltölulega hægt um vik með að fljúga til Íslands. Hún ætlar að vera á hóteli í Reykjavík á aðfangadagskvöld og segist hlakka mikið til að borða hér hátíðarkvöldverð. „Það verður einhver frábær matur á hótelinu,“ sagði hún við blaðamann.
fyrsta skipti á Íslandi

Þau verða því hér í fimm daga. „Við fórum gullna hringinn í gær (á sunnudag) og fórum svo að skoða norðurljósin,“ segir Glenda. Og Tom bætir því við að þau hafi líka skellt sér í Bláa lónið og farið í fjórhjólaferð fyrsta daginn sinn hérna.
„Nú ætlum við að fara í skoðunarferð um borgina,“ segir Tom. „Já, við ætlum bara að ganga um borgina og skoða,“ segir Glenda. Þetta er fyrsta skipti þeirra beggja á Íslandi. „Þetta er frábært. Við elskum þetta,“ segir Tom.
Íshellirinn bestur

Hún kunni best við sig í Íshellinum, en var ekki búin að sjá norðurljósin. „Nei, veðrið bauð ekki upp á það,“ segir hún. Christine er námsmaður í Bretlandi og hefur aldrei komið hingað áður. „Ég býst við að koma hingað aftur,“ segir hún og segir hlæjandi að hún gæti vel hugsað sér að búa hér.
Christine segir að ísinn heilli sig sérstaklega mikið og kuldinn fari ekkert illa með sig. „Ég óttast kuldann ekki neitt,“ segir hún.
Snortin af vinalegu fólki

„Fólkið hérna er mjög vinalegt,“ sagði Mason, aðspurður um það hver hefði verið sterkasta upplifun hans af Íslandi. Þau nutu sín vel í Reykjavík. „Ég kunni rosalega vel við það að fara á söfnin,“ sagði Camilla aðspurð um það hvað hefði hrifið hana mest við Reykjavík. Phillip bætti því við að Þjóðminjasafnið hefði sérstaklega vakið athygli sína.
Gengu á Snæfellsjökul

Þeir ætla að vera hér í þrjá daga. Þeir hafa ekki í hyggju að fara gullna hringinn en fóru í gær á Snæfellsjökul og spreyttu sig á því að bera fram nafn jökulsins við blaðamann. Þeir Daniel og Tom halda heim í dag.
Langar í jöklagöngu

„Við ætlum að fara í kirkjuna, fara upp í turninn og sjá útsýnið yfir alla Reykjavík,“ sagði Avy, en þau voru líka búin að sjá Hörpuna. Tak hafði mikinn áhuga á að sjá norðurljósin. „Heldurðu að það sé mögulegt í kvöld?“ spurði hann, en blaðamaður þorði engu að lofa.