Viðskipti innlent

Forstjóri Samherja: Seðlabankinn ítrekað orðið uppvís að ósannindum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Húsleit hjá Samherja árið 2012
Húsleit hjá Samherja árið 2012 Vísir/Pjetur
„Seðlabankinn hefur misbeitt valdi sínu á fordæmalausan hátt gagnvart Samherja og starfsfólki þess. Ítrekað hefur bankinn orðið uppvís að ósannindum sem staðfest hefur verið af bæði af dómstólum og sérstökum saksóknara,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf. í tilefni af yfirlýsingu sem Seðlabankinn sendi frá sér fyrr í kvöld.

Tilkynninguna frá Seðlabankanum má lesa hér en Þorsteinn segir hana vera „enn ein tilraun bankans til að breiða yfir eigin rangfærslur og mistök og afvegaleiða umræðuna.“

Hann segir niðurstöðu sérstaks saksóknara „ótvíræða“ og vísar í úrskurð embættisins.





Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
 „Nánar tiltekið taldi embættið að það sem fram kom við rannsókn málsins um ætluð brot og atvik þeim tengd benti ekki til að hugsanleg persónuleg refsiábyrgð [mín] eða annarra kærðra einstaklinga á ætluðum brotum í málinu gæti komið til álita.

Þegar af þeirri ástæðu lauk embættið meðferð sinni á viðkomandi sakarefnum málsins enda nægði hún til að útiloka að komið gæti til höfðunar sakamáls vegna ætlaðra brota.“

Þetta telur Þorsteinn vera til marks um að niðurstaða embættisins hafi verið skýr. „Ekkert kom fram við rannsókn málsins sem benti til saknæmrar háttsemi minnar eða annarra einstaklinga. Byggði niðurfelling málsins eingöngu á þeirri niðurstöðu embættisins og hefur ekkert að gera með skýrleika laga líkt og bankinn heldur fram. Málatilbúnaður Seðlabankans hefur frá upphafi verið tilhæfulaus. Niðurstaða sérstaks saksóknara staðfestir það einfaldlega,“ segir Þorsteinn.


Tengdar fréttir

Erfitt að heimfæra sakarefnin á forsvarsmenn Samherja

Sá ágalli sem varð við lagasetningu, þegar fjármagnshöft voru sett hér á landi í nóvember 2008, og varðar refsiábyrgð lögaðila, stendur ekki í vegi fyrir því að Seðlabanki Íslands beiti lögaðila stjórnvaldssektum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×