Tónlist

Coldplay vinsælust á Spotify á Íslandi

Freyr Bjarnason skrifar
Chris Martin og félagar í Coldplay voru vinsælastir á Spotify á síðasta ári.
Chris Martin og félagar í Coldplay voru vinsælastir á Spotify á síðasta ári. Vísir/Getty
Enska hljómsveitin Coldplay trónir á toppi mest spilaðra listamanna á Spotify á Íslandi árið 2014. Lagið I See Fire með Ed Sheeran var það vinsælasta og platan In the Lonely Hour með Sam Smith var sú mest streymda hér á landi árið 2014.

Aðeins einn íslenskur flytjandi komst á topp tíu-listann yfir mesta hlustun landsmanna á árinu, eða GusGus með plötuna Mexico. Aðspurður segir Njáll Þórðarson, tónlistarmaður og tengiliður Símans við Spotify, að fátt hafi komið sér á óvart varðandi listann, nema hvað að undarlegt sé að ekkert íslenskt lag hafi komist í efstu sætin. Íslensk jólatónlist var þó mjög mikið spiluð á tónlistarveitunni í desember.

Helstu ástæðuna fyrir lítilli íslenskri spilun telur hann að vitneskja um íslenska tónlist á Spotify hafi ekki verið mikil en að hún sé samt að aukast, en um 60 þúsund íslensk lög eru á tónlistarveitunni. „Ég held að íslenskir listamenn séu dálítið á byrjunarreit og hafi ekki enn áttað sig nógu vel á tækifærunum. Eitt lag á Spotify getur náð eyrum milljóna manna um leið og það kemur inn. Erlendir tónlistarmenn eru að nýta sér þetta mjög vel. Ég held að íslenskir listamenn haldi að þeir standi framar í markaðssetningu en þeir raunverulega gera,“ segir hann en tekur fram að Svavar Knútur hafi nýtt sér miðilinn vel. „Hann fær mjög góðar tekjur á Spotify.“

Ed Sheeran átti vinsælasta lagið á Spotify.
Njáll bætir við: „Við sem fylgjumst grannt með tónlist á netinu sjáum alltof oft dæmi um vinsæla íslenska listamenn sem kjósa að frumflytja lögin á Facebook með vísun á lagið á YouTube. Þar eru lögin svo með tugi og jafnvel hundruð þúsunda hlustana sem ekkert fæst fyrir. Það mætti spyrja sig hvort staða hljómsveitanna væri ekki allt önnur kysu þær að vísa á lagið í gegnum Spotify í stað þess að festa sig í neti frírrar spilunar.“

Njáll segir að í fyrsta sinn fáist nú raunsönn mæling á hvaða tónlist landsmenn kjósi að hlusta á. „Það gleymist oft að áður en löglegar tónlistarveitur eins og Spotify komu til streymdu margir erlendri tónlist og hlóðu niður ólöglega en keyptu frekar þá innlendu. 

Eina íslenska hljómsveitin sem komst á topp tíu var GusGus.mynd/ari magg
Engar opinberar tölur gáfu rétta mynd af heildarhlustuninni en með veitum eins og Spotify verður hlustunin bæði mælanleg og lögleg,“ segir hann en yfir 30 milljónir laga eru inni á veitunni. Samkvæmt tölum Spotify eru yfir fimmtíu milljónir virkra notenda að þjónustunni á heimsvísu, þar af 12,5 milljónir áskrifenda að Premium-þjónustunni. „Hér áður fyrr höfðu útvarpsstöðvar gríðarleg áhrif og vinsældalistarnir endurspegluðu spilun þeirra. Með netinu hefur opnast tónlistarheimur þar sem hver og einn getur sérsniðið dagskrána að áhugasviði sínu,“ segir hann. 

Sam Smith átti vinsælustu plötuna.
Tugþúsundir Íslendinga eru á Spotify en nákvæma tölu vill tónlistarveitan ekki gefa upp. Eitthvað hefur verið um að fólk úr tónlistarbransanum hafi gagnrýnt veituna. Bæði telur það að hún gefi lítið í aðra hönd og að hún letji fólk frá því að kaupa plötur. „Ég hef tekið þátt í útgáfu á stórum plötum á Íslandi og hérna hefur plötusala aldrei verið tekjulind. Það eru mjög fáir sem hafa verið að gera alvöru pening úr þessu,“ segir Njáll, sem var í hljómsveitinni Land og synir. 

„Við gáfum út plötu sem fór í 7.800 eintökum og fengum nánast engar tekjur af því. Útgáfufyrirtækin eru að vernda sínar fjárfestingar og eðlilega segja þau að þetta sé eitthvað ljótt. En ef neytandinn finnur fjölina á netinu er ekki hægt að stoppa þá framþróun. Þá þarf að finna leiðir til að hagnast á þessu nýja formi.“

Njáll Þórðarson
Topp fimm á Spotify á Íslandi 2014



Mest streymdu flytjendurnir:

1. Coldplay

2. Sam Smith

3. Eminem

4. Ed Sheeran

5. Beyoncé

Mest streymdu lögin:

1. I See Fire - Ed Sheeran

2. Happy - Pharrell Williams

3. Rather Be – feat. Jess Glynne - Clean Bandit

4. Chandelier - Sia

5. Take Me to Church - Hozier

Mest streymdu plöturnar:

1. In The Lonely Hour - Sam Smith

2. Eurovision Song Contest 2014 Copenhagen - Eurovision Song Contest

3. G I R L - Pharrell Williams

4. The New Classic - Iggy Azalea

5. 1000 Forms of Fear – Sia

...

8. Mexico - GusGus






Fleiri fréttir

Sjá meira


×