Íslenski boltinn

Jónas ætlar að fella Geir: Framboð mitt opnar á vissa umræðu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jónas Ýmir Jónasson ætlar í framboð gegn sitjandi formanni KSÍ. Kosið verður á ársþingi sambandsins 14. febrúar.
Jónas Ýmir Jónasson ætlar í framboð gegn sitjandi formanni KSÍ. Kosið verður á ársþingi sambandsins 14. febrúar. Vísir/Andri Marinó
„Ég veit ekki hvort fólk þorir ekki að fara á móti honum, en ég er með margar hugmyndir sem ég vil koma fram og tel mig alveg tilbúinn í þetta.“

Þetta segir Jónas Ýmir Jónasson, 38 ára starfsmaður Suðurbæjarlaugar og knattspyrnuáhugamaður, við Fréttablaðið, en Jónas Ýmir hefur boðið sig fram til formanns KSÍ. Hann fer því upp á móti Geir Þorsteinssyni, sitjandi formanni, sem hefur sinnt starfinu síðan 2007.

Sjá einnig:Geir fær mótframboð frá FH-ingi ársins 2014

„Hann er búinn að vera formaður í átta ár og unnið frábært starf, en nú er kominn tími á breytingar. Það hefur enginn gott af því að vera of lengi í starfi. Mér finnst að kjörtímabilið ætti að vera fjögur ár í senn og menn mættu mest sitja tvö kjörtímabil,“ segir Jónas.

Síðar í vikunni ætlar að Jónas Ýmir að koma á framfæri hugmyndum sínum um framtíðarstefnu KSÍ, en það er þó eitt sem brennur hvað helst á honum.

„Þetta virðist vera svolítið lokuð klíka. Ég vil opna þetta meira og t.a.m. opna bókhaldið og leyfa fólki að sjá í hvað peningarnir fara. Geir hefur gert margt gott, en samt eru hlutir sem þarf að laga og bæta. Framboð mitt opnar allavega á umræðu um þessa hluti og það er gott fyrir alla að breyta hugsunarhætti sínum. Ekkert varir að eilífu,“ segir Jónas Ýmir.

Geir Þorsteinsson hefur verið formaður KSÍ í átta ár.vísir/stefán
Hann segist hafa fengið stuðning eftir að framboðið var kynnt í gær og býst við meiri stuðningi síðar í vikunni þegar hann kynnir sínar hugmyndir. Jónas hefur íhugað lengi að fara í framboð.

„Ég hugsaði þetta fyrir síðustu formannskosningar en augljóslega gerði ég ekkert í því þá. Ég hef pælt í þessu síðustu tvö ár og lét verða af þessu núna. Það hafa allir gott af smá samkeppni og það á líka við um formann KSÍ,“ segir Jónas Ýmir, skellir svo upp úr og bætir við í gamni: „Ekki meir, Geir.“

Jónas hefur verið knattspyrnuáhugamaður frá blautu barnsbeini og mætt á nær alla leiki liðsins í þrjá áratugi. „Ég var þarna líka í gegnum erfiðu tímana. Við pabbi eru miklir FH-ingar þó ég sé líka í mikilli Haukafjölskyldu. Þó við séum FH-ingar þá eru engin vandamál í fjölskyldunni,“ segir hann léttur í bragði.

Jónas er í sambúð með Hjördísi Pétursdóttur, geislafræðingi á Landspítalanum, en þau hafa verið í sambandi í 19 ár. Þau eiga tvö börn: Stúlku sem er sex ára og dreng sem er þrettán ára.

„Strákurinn hefur ekki mikinn áhuga á fótbolta en sú litla æfir bæði handbolta og fótbolta með FH. Það er mikil íþróttaástríða í henni eins og pabba sínum,“ segir Jónas Ýmir Jónasson.


Tengdar fréttir

Geir vill komast í stjórn UEFA

Formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, hefur ákveðið að gefa kost á sér í stjórn Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×