Lífið

Schiffer með prjónalínu

Ofurfyrirsætan hefur gengið til liðs við fyrirtækið Tse.
Ofurfyrirsætan hefur gengið til liðs við fyrirtækið Tse. Vísir/Getty
Claudia Schiffer hefur gengið til liðs við prjónavörufyrirtækið Tse.

Saman ætla þau að framleiða fyrstu tímalausu prjónavörulínu fyrirsætunnar. Um er að ræða línu með sautján kasmír- og ullarblönduvörum, þar á meðal kjóla, peysur og buxur.

Innblásturinn var fenginn úr ljósmyndum sem David Hockney tók á áttunda áratugnum.

Einnig minnir línan á uppvöxt hinnar 44 ára Schiffer í Þýskalandi, auk þess sem áhugi hennar á heimili sínu í ensku sveitinni veitti henni innblástur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×