Lífið

Æskuheimili bítils til sölu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Upphafsboð í heimili bítilsins eru 100.000 pund.
Upphafsboð í heimili bítilsins eru 100.000 pund. Vísir/Getty
Eitt af æskuheimilum bítilsins fyrrverandi, Pauls McCartney, fer á uppboð síðar í mánuðnum.

Húsið, sem er á Western Avenue í Liverpool, er að sögn tónlistarmannsins fyrsta húsið sem hann man eftir að hafa búið í og upphafsboð er 100.000 pund.

Annað af æskuheimilum tónlistarmannsins, sem er á Forthlin Road númer 20, er nú í eigu The National Trust en McCartney á að hafa verið búsettur þar ásamt foreldrum sínum þegar tónlistarferill hans hófst.

Uppboðið fer fram þann 26. febrúar og verður haldið á barnum Cavern Club þar sem Bítlarnir spiluðu áður en þeir risu til frægðar og frama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×