Lífið

Gjörsamlega endurnærður eftir frí á Balí

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Helgi Björnsson
Helgi Björnsson
„Ég er alveg gjörsamlega endurnærður,“ segir söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson sem er nýkominn heim úr fimm vikna fríi frá Singapúr og Balí.

Þangað skellti hann sér ásamt eiginkonu sinni að heimsækja son þeirra, tengdadóttur og barnabarn sem búa í Singapúr.

Helgi slær þó ekki slöku við eftir fríið og heldur tónleika á Spot í Kópavogi ásamt hljómsveit sinni SSSól í kvöld og er svo að leggja drög að nýrri plötu.

Á næstunni ætlar hann út á land að semja nýtt efni. „Ég á eitthvert efni en svo ætla ég að bæta nýju við.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×